Náttúrufræðingurinn - 1933, Síða 3
MÁTTÚRUFKÆÐINGURINN 1933
129
Akurgœs (Anser fabalis fabalis Latham).
(Eftir Sergius Alpheraky: The Qeese of Europe and Asía, London 1905).
Nokkur orð tmi grágæsír og helsíngja.
Frh.
5. tegund.
Samnefni: Anas segetum, Gmelin; Anser segetum (Gmelin); Anser faba-
lis (Latham); Melanonyx segetum (Gmelin); (Alpheraky).
(Á Norðurlandamálum: Sædgaas, sádgás; á ensku: Bean Goose; á þýzku:
•Saatgans).
Lýsing: Höfuðið og hálsinn dökk-mógrátt, umhverfis nefrótina
■er oft, en alls ekki ætíð, dálítil hvít rönd, sem stundum vantar
alveg eða það sést aðeins votta fyrir henni. Bakið ofantil er dökk-
móleitt með hvitgráum jöðrum á fjöðrunum, en neðri hluti baksins
að mestu einlitur—mósvartur, því fiðrið verður þar allt. dekkra er
neðar dregur. Bringan og kviðurinn ofanverður ljósgrátt, en verð-
ur allt ljósara er aftar (neðar) dregur, — fiðrið á lærunum og sið-
unum er mögrátt með ljósleitum fjaðurjöðrum. Þakfiðrið ofan á
vængjunum er mógrátt ofantil, en neðan á vængjunum, næst flug-
fjöðrunum, er það mjög dökkleitt — mósvart með Ijósari jöðrum
á fjöðrunum. Flugfjaðrirnar mósvartar, en fjaðurhryggirnir hvítir
9