Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 16

Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 16
142 NATTORUFHl. Arangur isíenzkra fngíamerkínga. iii. Erlendis hefir spurzt um: Lóa, ungi merktur hjá Víðikeri í Bárðardal 18/7 — '33. Skot- inn á Helgoland þ. I3,9 — ’33. Innanlands hafa náðst: 1. Kría, merkt íullorðin á Sauðárkróki 25h — ’32. Skotin í sumar samastaðar i2h — ’33. 2. Kría, merkt fullorðin á Sauðárkróki 2bh — ’32. Fundin dauð samastaðar i sumar 30h — ’33. Ennfremur mun hafa frétzt til þriðju kríunnar, sem að líkind- um hefir verið merkt í fyrra sumar á þessum slóðum. Hafði hún náðst á síldveiðaskipi í sumar innarlega á Skagafirði, en þar eð merkihrir.gurinn glataðist og númerið á honum gleymdist, verður þó ekkert fullyrt um þetta. Þótt árangur fuglamerkinganna sé eigi mikill enn þá, — enda er vart að vænta þess eftir eitt einasta starfsár, — benda þó endurheimtur hinna merktu fugla, sem þegar eru kunnar, til þess,. að vænta megi góðs árangurs af íslenzkum fuglamerkingum. Það er að vísu allt of fljótt að draga ályktanir af örfáum dæmum, en dæmin um lóurnar og kríurnar virðast benda i mjög ákveðna átt. Lóuungarnir fara af landi burt óðar og þeir eru orðnir nógu vel fleygir til þess, að minnsta kosti 4-5 vikum á undan foreldrun- um. Er þetta kunnugt víðar frá erlendís, um ýmsa aðra fugla. Um lóuna er mér ekki fullkunnugt um að þetta hafi full sannast enn og þarf því að bíða átekta um hríð. Krían kemur augsjáanlega. aftur ár frá ári til varpstöðva sinna, en enn þá hafa ekki náðst aftur ungar, sem merktir hafa verið hér á landi, en ætla má að- þeir leiti hingað er þeir hafa aldur til og fara að verpa. M. B. Hvað á eg að gefa gtríífísktmtmi mínttm? Margir hafa spurt mig um það, til hvaða úrræða þeir ættu að grípa til þess að halda lífi í nokkrum smáfiskum, er þeir héldu í vatnsbúri í herbergi sínu, þar sem innflutningshöft og- gjaldeyrisskortur hafi nú lagt kaldan náhramm á fóðurtegundir*

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.