Náttúrufræðingurinn - 1933, Blaðsíða 26
152
nAttúrufr.
76. teg. Skúfönd [Nyroca i'uligula (L.)]. Er orðin all-algeng og verpur
víða um land á síðari áratugum. Fyrir s. 1. aldamót þekktist hún varla. Farfugl..
77. teg. Húsönd [Glaucionetta islandica (Gmelin) ]. Algeng víða á Norð"
urlandi, sjaldgœf sunnaniands á sumrum, algeng þar að vetrinum. StaðfugL
78. teg. Húsönd (partim). [Glaucionetta clangula clangula (L.)]. Afar-
sjaldgæf, hefir einstaka sinnum sézt norðanlands, er líklegast farfugl.
79. teg. Straumönd [Histronicus histronicus histronicus (L.)]. StaðfugL
Algeng um land allt.
80. teg. Hávella [Clangula hyemalis (L.)]. Staðfugl. Algeng um laud allt..
81. teg. ÆSarfugl (Somateria mollissima islandica C. L. Brelim). Algeng-
ur umhverfis allt landið. Að mestu leiti staðfugl.
82. teg. Æ'ðarkongur [Somateria spectabilis (L.)]. Fremur sjaldgæfur
fugl; kcmur hingað lielzt að haustinu og vetrinum. Yerpur liér þó endrum og
eins. aðallega á Norðurlandi.
83. teg. Hrafnsönd [Melanitta nigra nigra (L.)]. Farfugl. Fremur sjald-
gæf. Verpur helzt norðanlands.
84. teg. Korpönd [Melanitta fusca fusca (L.) ]. Afar sjaldgæf. Hefir að-
eins einu sinni komið hingað svo menn viti.
85. teg. fíulönd (Mergus merganser merganser, L.). Staðfugl. All-algeng
við veiðiár og vötn.
86. teg. Toppönd (Mergus serrator, L.). Algeng við öll vötn, ár og læki,
sem fiskar ganga í. Staðfugl.
IX. ættbálkur. Hegraættbálkurinn (Ardeiformes).
24. ætt. Hegraættin (Ardeidae).
87. teg. Iiegri Ardea cinerea cinerea, L.). Ekki óalgengur haust- og vetrar-
gestur á Suðurlandí. Sjaldgæfur annars stðaar.
88. teg. Litli nátthegri [Ixobrj'chus minutus minutus (L.)]. Afar-sjald-
gæfur. Hefir einu sinni komið hingað.
89. teg. Nátthegri (Botaurus lentiginosus Montagu). Sjaldgæfur haust- og
vetrargestur. Hefir komið hingað þrisvar sinnum síðan um s. 1. aldamót.
25. ætt. Ibisættin (Ibidae).
90. teg’. Plegadis falcinellus falcinellus (L.). Afar-sjaldgæfur. Hefir-
einu sinni komið hingað.
X. ættbálkur. Vaðfuglaættbálkurinn (Charadriiformes).
26. ætt. Lóuættin (Charadriidae).
91. teg. Þórshani [Phalaropus fulicarius fulicarius (L.)]. Sjaldgæfur
farfugl, en verpur þó hér og þar um land.
92. teg. Óðinshani [Phalaropus lobatus (L.) ]. Farfugl. Algengur um land
allt.
93. teg. Hrossagaukur [Capella gallinago faeroensis, C. L. (Brehm)]. Al-
gengur farfugl. Verpur víðasthvar um land.