Náttúrufræðingurinn - 1933, Side 13
NÁTTÚRUFR
139
•fcitthvað uggvænt, er hann þotinn upp úr bæli sínu eitthvað þang-
•að, er hann heldur sig vera tryggari eða geti frekar villt óvin-
unum sýn. Annars er hann víða um heim mjög samlitur jörð-
unni, á hvaða tíma árs sem er, og treystir mikið á, að hann sjá-
ist ekki. Á veturna, þegar snjór er og spor hans verða rakin,
gengur hann ýmsa króka áður en hann legst í bæli sitt, og stillir
svo til, að hann sjái yfir sporin. Þetta gerir hann til þess að villa
þá, er rekja kynnu sporin.
Nálgist einhver óvinur, t. d.
refur eða hundur, og fari eft-
ir sporunum beint á bælið,
þýtur hann upp í einu vet-
fangi. Sé aftur ekki stefnt á
bælið, þó að eitthvað séu rak-
in sporin, liggur hann kyr og
treystir því, að hann sjáist
ekki. Veiðimenn kunna að
nota sér þetta; verði þeir
varir við héraspor og sjá, að
hann muni eiga bæli í nánd, varast þeir að stefna á bælið, ganga
heldur í hring, sem þeir þrengja allt af, og geta á þann hátt
komist alveg að héranum.
Hérar, að minnsta kosti tegundirnar í Evrópu, eru ekki fé-
lagslyndir; þeir fara einförum, kemur jafnvel illa saman ef þeir
eru of miklir nágrannar. Móðirin liggur ekki einu sinni hjá ung-
um sínum, nema rétt á meðan hún gefur þeim að sjúga, og það
-verður meira að segja að gerast í mesta flýti. Til matfanga fara
þeir í hálfbirtunni kvölds og morgna, á daginn og nóttunni liggja
þeir allt af viðbúnir að flýja, ef hættu ber að höndum. Aðeins í
ástafarinu eru þeir meira á ki-eiki.
Heldur þykir það skoplegt að sjá til héra, þegar þeir eru á
biðilsbuxunum. Eins og víðast annarsstaðar er það karldýrið,
sem hefur bónorðið. Hann fer á flakk, og ef hann þá hittir ein-
hverja, sem hann sér að muni taka blíðu hans, taka þau til að
hoppa á afturlöppunum í hring og „kókettera" hvort við annað.
Komi nú annar biðill þarna að, sem oft vill verða, blossar af-
brýðisemin óðar upp; biðlarnir hoppa hver á móti öðrum og taka
til að löðrunga hvor annan með framlöppunum. Á þessu gengur
þangað til annarhvor fer sem sigurvegari af hólmi og vill nú fá
ástarblíðu unnustunnar að sigurlaunum, en hún hefir þá máske
ekki reynst trygglyndari en það, að hún er horfin á braut með
Héri (B. Sæm.: Spendýrin).