Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 149
IIIIIIKIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII111111111111IIIlllllllllllllllllllllllllllllllllIIIllllllllllIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Þegar nú kynsellur konunnar myndast, þá verða 23 a-þræðir
en einn x-þráður í hverri, nefnilega nákvæmlega helmingurinn
af því, sem var í líkamssellunum. En þegar kynsellur manns-
ins myndast, verða að vísu 23 a-þræðir í hverri, alveg eins og
í eggi konunnar, en þar sem aðeins er einn x-þráður í hverri
líkamssellu mannsins, og þræðirnir klofna ekki við kynsellu-
myndunina, fær önnur hver kynsella mannsins einn x-þráð, en
önnur hver engan. Allar kynsellur konunnar eru því eins, hver
með 23 a-þráðum og einum x-þræði, en hjá manninum eru til
tvennskonar kynsellur, nefnilega sellur með aðeins 23 a-þráð-
um, og sellur með 23 a-þráðum og einum x-þræði að auki, eða
með öðrum orðum alveg eins og kynsellur konunnar, að lit-
þráðum til. Mæti nú sella af fyrri gerðinni eggi konunnar, og
myndi fóstur, fær hin frjógaða eggsella, og síðan allar sellur
í líkama fóstursins, 46 a-þræði en aðeins einn x-þráð, og barnið
verður drengur, en renni frjósella af síðari gerðinni saman við
eggið, fá sellur fóstursins einnig 46 a-þræði, en tvo x-þræði,
einn frá hvoru foreldri, og þá verður barnið stúlka.
Svona gagnger er nú mismunurinn á manni og konu, að hver
einasta sella í líkama konunnar er með öðru sniði, frábrugðin
því sniði, sem hver einasta sella í líkama mannsins hefir, því
konusellan hefir tvo x-þræði, en mannssellan aðeins einn.
Hjá karlmanninum myndast, eins og sagt var, tvenns konar
kynsellur, með x-þræði og án x-þráðar, og við fósturmyndunina
er það undir kasti komið, hvaða tegundin af þessum sellum
sameinast egginu. Það, sem gerir mismuninn á karli og konu,
liggur í eðli karlmannsins, því að kynsellur konunnar eru allar
eins, og alveg hlutlausar hvað þetta atriði snertir.
Hjá öllum spendýrum, froskdýrum, fiskum, bjöllum, flugum
og mörgum öðrum dýrum, eru möguleikarnir til kynsákvörð-
unarinnar í eðli karldýrsins, alveg eins og hjá manninum. En
hjá mörgum öðrum dýrum, t. d. fuglum og fiðrildum, liggja
þessir möguleikar í kvendýrseðlinu, eða með öðrum orðum:
kvendýr þessara tegunda framleiða tvennskonar egg, eða tvenns-
konar kynsellur, en karldýrið aðeins einskonar. Við frjógunina
verður önnur eggjategundin að kvendýrum, en hin að karl-
dýrum.