Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 36

Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 36
176 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 11111111111111111111111II11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111,11,1! 1111,11111111,11,11,11,,,, I (|| |( (| a|, ( Himbrimi (Colymbus immer) sást fyrst 27. apr Steindepill (Oenanthe o. schiöleri) — — 27. — Þúfutittlingur (Anthus pratensis) — — 27. — Rauðhöfðaönd (Mareca penelope) — — 28. — Lóuþræll (Erolia a. alpina) — — 29. — Hettumáfur (Larus r. ridibundus) — — 29. — Sandlóa (Charadrius hiaticula) — — 30. — Spói (Numenius phaeopus islandicus) — — 4. maí Kría (Sterna macrura) — — 4. — Sendlingur (Erolia m. maritima) — — 7. — Kjói (Stercorarius parasiticus) — — 8. — óðinshani (Phalaropus lobatus) — — 18. — Nokkurir samverkamanna minna við fuglamerkingarnar eru þegar farnir að senda mér svipaðar skýrslur þessari, sem hér er birt, og kann eg þeim beztu þakkir fyrir; mun eg halda þeim til haga og birta þær, eða að minnsta kosti aðalatriði þeirra, við og við, eftir því sem hentugleikar eru til. Er mjög æskilegt að geta fengið svona athuganir gerðar sem víðast á landinu, eigi ein- ungis um komudaga fuglanna til sumarstöðva sinna, heldur einn- ig um burtfarartíma þeirra líka. Um haust- og vetrargesti og aðra sjaldgæfa fugla er einnig gott að fá að vita um. Þegar sam- an eru komnar margra ára skýrslur víðsvegar að landinu, eru líkur til að úr þeim fáist vitneskja um ýmsa hluti, sem fræðimönn- um eru nú miður kunnir, eða aðeins óljóst er vitað um, af lifn- aðarháttum fuglanna. Öllum upplýsingum um þessi efni tek eg með þökkum. Magnús Björnsson. Pósthólf 316, Reykjavík.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.