Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1935, Blaðsíða 18

Náttúrufræðingurinn - 1935, Blaðsíða 18
158 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiniiiiininniiimininiiniiiniKnnnmimnumm^ Útvarp — hljóð — Ijós — Röntgengeislar. HvaS er tilveran í raun og veru annaS en bylgjur? Er ekki líf mannsins ein einasta mikil sveifla frá lægsta byrjunardepli æsk- unnar upp aS toppi þeirrar fullkomnunar, sem einstaklingurinn nær, og svo aftur niður á við, þangað til bernskustiginu er náð í annað sinn? Þegar við skynjum hljóð, verður það fyrir bylgjur, sem berast eyranu gegnum loftið. Ef við sjáum hlut, eru aftur bylgjur á ferðinni, ljósbylgjurnar. Lítum við á blett með dögg- votu grasi, þegar sól er á lofti, glitra daggarperlurnar á stráun- um í mörgum, undurfögrum litum. En þegar ský gengur fyrir sólina, hverfa litirnir þegar í stað, og eftir verður aðeins grár, lítilfjörlegur vatnsdropi. Litargeislarnir, sem berast auganu frá daggardropanum, hljóta því að koma frá sólinni. Leið þeirra liggur fyrst til daggardrop- ans og svo frá honum til augans. Af þessu sjáum við að í sólar- Ijósinu eru litirnir, sem við þekkjum svo vel úr daglega lífinu. Þegar bylgjur koma úr einu efni í annað, skipta þær stefnu á takmörkum efnanna. Þannig t. d. ljósbylgjur, sem koma í gler úr lofti. Ef við höfum þrístrent gler, eins og þjalarblað í laginu, og látum sólarljósið falla á eina hlið þess, breyta ljósbylgjurnar stefnu, þegar þær fara í gegnum glerið, þær brotna, en mismun- andi mikið, eftir því hvaða bylgjulengd þær hafa. Þegar ljósið hefir farið í gegnum glerið er það greint í liti, sem við getum látið falla á spjald, og þessir litir eru ávallt í ákveðinni röð í hlut- falli hver við annan. Látum við ljósið brotna þannig í glerinu, að litirnir liggi lárétt, hver við annars hlið, verður annars vegar rautt einn litur, þá rauðgulur, gulur, grænn, blár, indígó-blár og fjólublár. Þessi litaröð, sem kemur fram við það, að hinar mis- munandi bylgjulengdir í sólarljósinu greinast í sundur, kallast litrof, og áhald það, sem einkum er til þess notað að brjóta ljósið á þennan hátt, heitir litsjá (Spektroskop). 1 sólarljósinu eru þessir litir, sem að ofan voru nefndir. En við getum athugað hvaða litir eru í ljósi, sem endurkastast frá hvaða hlut sem er. Það kemur þá í ljós, að nærri því hvaða efni sem er hefir sitt sérstaka ljósrof, þ. e. a. s. Ijós, sem það sendir frá sér, hefir ákveðna liti, alltaf í sömu röð, þegar ljósið er brotið eins og í litrofi sólarinnar.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.