Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1945, Qupperneq 14

Náttúrufræðingurinn - 1945, Qupperneq 14
124 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN í upptökum jökuláa er liitastig vatnsins 0° (eða því sem næst). Jökulám og lindám svipar saman að því leyti, að báðar liafa stöðugt (og lágt) hitastig í upptökunum. í hlýindum á sumrin hækkar hita- stig beggja, er fjær dregur upptökum, unz það nálgast lofthitann. Og þótt jökulár séu venjulega 3—4° kaldari en lindár, munu þær margar hverjar ná því marki fyrr (á skemmri leið), vegna þess að þær renna yfirlcitt dreift og eru grunnar, en lindárnar mjóar og djúpar. begar kemur niður á undirlendi, virðast hin miklu jiikulvötn, Hvítá, Þjórsá og Skaftá, verða alveg eins hlý í sumarhitum og dragár á sömu slóðum og miklu hlýrri en lindár á borð við Brúará og Rangá. í vetrarfrostum leggur jökulár yfirleitt fljótt, en að mínu viti þó engu fyrr en jafnstórar dragár. Oll íslenzk jökulvötn eru skolleit af leirgruggi og bera auk jicss fram kynstur af sandi og möl. En allt er þetta bergmylsna, sem jökl- arnir sverfa upp úr undirlagi sínu. Framburður jökulvatna af þess- um efnurn er enn meiri en dragáa og miklu stöðugri, minna háður váfnavöxtum. í brattlendi grafa jökulár sig ekki síður niður en drag- ár, og farvegir þessara ártegunda eru mjög áþekkir. Þó hættir jökul- ám meir en dragám til að verða að auravötnum. Því valda þau feikn af grjótmylsnu, sem jöklarnir ryðja í upptök þeirra án tillits til þess, hvort þær eru færar um að bera það allt fram. Þar sem halli er lítill, getur svo farið, að þær liafi ekki við og Idaða þá fremur undir sig en grafa sig niður. Þannig myndast víðáttumiklir aurar og hylja allt fast berg á stórum svæðum. Um jrá dreifast árnar venjulega í mörg- um kvíslum og mjög breytilegum, jafnvel frá einni dagstund til ann- arrar. Öll hin illræmdu auravötn í Skaftafellssýslu og Rangárvalla- sýslu koma undan jöklum, t. d. Skeiðará, Núpsvötn, Múlakvísl og Markarfljót. Auravötn er erfitt að brúa, vegna þess hve þau flytja sig til á aurunum, og sum óbrúandi vegna jökulhlaupa. Aftur á móti eru á þeim tiltölulega grunn vöð, en afar óstöðug og hættuleg vegna sandbleytu. Nú hef ég lýst í aðalatriðum þremur höfuðtegundum íslenzkra vatnsfalla: lindám, dragám og jökulvötnum, og nokkrum afbrigðum þeirra eða undirtegundum. Eins og fyrr var getið, tekur jressi flokk- un alls ekki til stærðar eða vatnsmagns ánna, lieldur aðeins uppruna og eðlis. Stór vatnsföll — ár — hafa aðallega verið tekin til dærnis, en þegar svo ber undir, eiga nöfnin lindalœkur, dragalcekur, jökullcekur o. s. frv., fullan rétt á sér. Næst upptökum eru allar þessar vatnsfalla- tegundir með svo glöggum einkennum, að þær eru auðþekktar hver

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.