Náttúrufræðingurinn - 1945, Qupperneq 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
127
Sveinn Þórðarson:
Wilhelm Conrad Röntgen
Fæddur 23. marz 1845 — Dáinn 10. íebr. 1923
Framfarir á sviði vísindanna l'ara jafnan fram í lotnm, þannig að
um viss árabil rekur hver stóruppgötvunin aðra, en síðan taka við
lengri eða skemmri tímabil, sem varið er til hagnýtingar þeirra upp-
götvana, sem gerðar hafa verið, söfnun staðreynda og undirbúnings-
starfs undir ný átök og nýja sigra í viðleitni mannsandans að öðlast
skilning og þekkingn á lögmálum náttúrunnar. Má t. d. benda á, að
allt til þess síðasta voru það einkum nýjungar á sviði læknisfræði
og efnafræði, sem efst liafa verið á baugi og mest fyrirheit hafa gefið,
eins og tilkoma sulfa-lyfjanna, plastic-efna og penicillins, svo að
nefnd séu nokkur nærtæk dæmi, þar til hagnýting kjarnorkunnar
nú fyrir skemmstu kom sem krýning á margra ára sleitulausu rann-
sóknastarfi margra hinna færustu eðlisfræðinga heimsins.
Þannig var að sínu leyti árabilið fyrir og eftir síðustu aldamót
einnig eitt hið frjóasta og glæsilegasta, sem sögur fara at' á sviði
eðlisfræðinnar. Má þó segja að öll 19. öldin hafi verið þéttskipuð
miklum og merkum uppgötvunum og átti hún mörgum afreks-
manninum á sviði vísindanna til að dreifa. Þá liafa og framfarirnar
ekki síður verið stórstígar, það sem af er 20. aldarinnar. Samt er það
svo, að þegar litið er um öxl yfir síðustu öld og það, sem af er þessari,
þá mun árabilið um og el'tir síðustu aldamót jafnan verða talið sér-
stakt fyrir þær mörgu nýstárlegu og umturnandi uppgötvanir og
og kenningar, sem eðlisfræðin þá varð auðug að. Með þessum
uppgötvunum verða þáttaskipti í eðlisfræðinni, hin svonefnda
„klassiska" eðlisfræði 19. aldarinnar víkur úr sæti fyrir kenningum
„nútíma“ eðlisfræðinnar. Þeirri ritgjörð, sem hér liggur fyrir, er
ætlað að segja lítillega frá þeim manni, sem það átti fyrir að liggja,
að auðga mannkynið að einni hinni þýðingarmestu uppgötvun eðlis-
fræðinnar, einmitt þeirri uppgötvun, sem varð fyrsti forboði hinnar
nýju eðlisfræði. Nýverið eru liðin 100 ár síðan höfundur þessarar
uppgötvunar fæddist, og nú í haust eru 50 ár liðin síðan uppgötv-
unin var gerð og þykir |)ví viðeigandi að þessa velgerðarmanns mann-
kynsins sé minnzt hér með fám orðum.