Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 18
128
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Wilhelm Conrad Röntgen er fæddur 23. marz árið 1845 í borginni
Lennep, sem er smáborg skannnt frá Dusseldorf í Þýzkalandi. Faðir
lians var kaupmaður þar í borg, en móðurætt sína rakti Röntgen
að nokkru leyti til Hollands. Fluttust foreldrar hans búferlnm til
borgarinnar Apeldoorn í Hollandi er hann var þriggja ára. Var það
ætlun þeirra, að Wilhelm Conrad sonur þeirra fetaði í spor föður
síns og gerðist vefnaðarkaupmaður; settu þau hann til mennta, fyrst
í skóla nokkurn í Apeldoorn en síðar í menntaskóla í Utrecht. Ekki
þótti hann neinn garpur til námsins, en liann var frekar hneigður
fyrir smíðar og annað föndur, sem títt er um pilta á hans reki, en í
bóklegum greinum var hann ekki franrarlega og var ekkert í fari
lians, sem verið gæti forboði þeirra afreka, sem fyrir honum lá að
vinna. Sérstaklega gekk honum afleitlega að nema latínu og grísku,
sem mikil áherzla var lögð á í skóla þeim, sem hann var í. Gekk
honum svo stirðlega í þeim greinum, að þegar til kom náði hann
ekki stúdentsprófi frá skólanum, og hvarf liann þaðan próflaus. Varð
prófleysi hans honum til mikils baga, þar eð hann átti nú hvorki að-
gang að háskólum í Þýzkalandi né Hollandi, en þar hefði legið
beinast við fyrir hann að stunda nám. Varð Röntgen nú að leita til
Svisslands, en í verkfræðingaskúlann í Zúrich var þá heimill að-
gangur mönnum án stúdentsprófs, ef þeir að öðru leyti fullnægðu
ákveðnum skilyrðum. Lauk hann prófi í vélaverkfræði þaðan árið
1868, en ári síðar lauk hann doktorsprófi í eðlisfræði hjá Kundt, sem
Jiá var nýorðinn prófessor í eðlisfræði við Ziirich-háskólann. Þótti
þegar sýnt, að í Röntgen myndi búa gott vísindamannsefni, og
skömmu eftir að liann hafði lokið doktorsprófi réð Knndt: hann til
sín sem aðstoðannann, er hann fluttist til Wiirzburg til þess að taka
við prófessorsembætti Jrar. Fékkst Röntgen nti við rannsóknir áf
miklu kappi og með ágætum árangri, enda var hann fyrir atbeina
Kundts ráðinn privatdósent við háskólann í Strassborg árið 1874,
en Jiar voru Þjóðverjar Jiá nýbúnir að stofna háskóla. Dvaldist Rönt-
gen ]>ar um hríð og naut góðs álits sem afkastamikill og glöggur vís-
indamaður. Árið 1879 bauðst honum prófessorsembætti við háskól-
ann í Giessen og vann hann Jiar um nokkurra ára bil af miklu kappi,
og buðust honum einnig á þessum árum prófessorsembætti við há-
skólana í Jena og Utrecht, en þeim hafnaði hann. En árið 1888
bauðst honum prófessorsembætti í Wurzburg og tók hann ])ví. Má
nokkuð marka álit vísindamanna á Röntgen um Jiessar mundir af
veitingu Jressari, því að sá, er hann tók við af, var talinn meðal
fremstu eðlisfræðinga, og voru því engar smákröfur gerðar til eftir-