Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 131 slíkri heppni verða ekki aðrir en þeir, seni eiga hana skilið, svo að notuð séu orð franska stærðfræðingsins Lagrange um Isaac Newton. Með hinni glöggu athugunargáfu sinni og kröfunni um rökvísan skilning á orsakasamböndum eðlisfræðilegra rannsókna, uppgötv- aði Röntgen hina nýju geislategund, er síðan hefir borið nafn lians. Röntgen varð svo hugfanginn af uppgötvun sinni, að hann unti sér vart svefns fyrstu vikurnar og fór varla úr rannsóknarstofu sinni. Engum sagði liann frá uppgötvun sinni, liann vildi vera viss í sinni siik, áður en hann léti nokkuð frá sér fara. Meira að segja konu sinni, sem hlaut þó að verða þess áskynja, að eitthvað var að gerast, sagði hann ekkert, en lét þess þó eitt sinn getið við iiana: ,,Ef fólk vissi ltvað ég er að gera núna, myndi það segja: ,Nú er hann Riintgen orðinn brjálaður.' “ A tæpum tveim mánuðum vann Röntgen það Jnrekvirki, sem telja má einstakt, að rannsaka allt það helzta um ltina nýju geisla, sem hann sjálfur ætíð nefndi X-geisla, og hinn 28. desember 1895 flutti ltann fyrirlestur um uppgötvun sína, og var titill erindisins: „Um nýja tegund geisla.“ Gerði ltann þar grein fyrir rannsóknum sínum og niðurstöðum. Erindið kom iit á prenti á þýzku snennna í janúarmánuði, og þrem vikum síðar birtist þýð- ing þess á ensku. Hálfu öðru ári síðar birti Röntgen viðbótarritgjörð. I ritgjörðum þessum, sem eru taldar klassiskar, vísindalegar ritsmíð- ar, gerir Röntgen á stuttorðan en gagnorðan hátt ýtarlega grein fyrir eðli og myndun hinna nýju geisla. Þessar rannsóknir voru svo ýtar- Iegar og tæmandi, að næstu seytján árin varð engum markveiðum þekkingarauka bætt þar við, og það þótt flestallir eðlisfræðingar lieims sneru sér að rannsókn hinna nýju geisla. Ýmsar raddir hafa verið á lofti um það, bæði fyrr og síðar, að Röntgen geti naumast talizt hafa uppgfjtvað röntgengeislana, þar eð hann ekki leitaði þeirra, og tilrauna-útbúnaður hans var liinn sami, ellegar svipaður og útbúnaður ýmissa annarra samtíðarmanna hans. Þessar mótbárur verða næsta léttvægar þegar þess er gætt, að ekki er hægt að leita þess, sem menn vita ekki að sé til, enda hefir það jafnan verið svo, að upp- götvanir á sviði náttúruvísindanna hafa orðið á þann hátt, að menn fundu annað en það, sem þeir leituðu að. Er þá, eins og áður er getið, gildi vísindamannsins fólgið í því, að veita fyrirbrigðunum athygli og að rekja síðan á kerfisbundinn hátt uppkomu þeirra og lögmál þau, er þau lúta. Rcintgen tókst joetta á meistaralegan hátt, eins og við var að búast af slíkum vísindamanni, sem hann var. Um uppruna geislanna fann hann, að j^eir myndast jiegar katóðugeislar rekast á efni, sem stöðva 9*

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.