Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1945, Qupperneq 24

Náttúrufræðingurinn - 1945, Qupperneq 24
134 NÁTTÚRUFRÆÐING U RINN ingarmestu á sviði kristalla- mælinga, og þær rannsókn- ir veittu nýja innsýn í smá- heima efnisins. Á sviði lækn- isvísindanna hafa röntgen- geislar reynzt m i k i 1 v i r k t hjálpartæki, og sú hlið þeirra er almenningi miklu kunnari en hin eðlis- fræðilega. Má sennilega rekja til þess þann misskilning, er víða verður vart, að Röntgen hafi verið læknir. Röntgengeislarnir eru eins og kunnugt er, mjög notaðir til þess að atlniga samsetningu beinbrota og við leit að aðskotahlutum í líkamanum (málmflísum, sprengjubrotum). Þá eru þeir og mjög notaðir í baráttunni við berklana, og er þess skennnst að minnast, að allir íbúar höfuðstaðar- ins voru röntgenskoðaðir. Hinar stórstígu framfarir á læknisfræðilegri notkun röntgengeisl- anna hefir læknastéttin því miður orðið að borga með þungbærum fórnum, Jrar sem ýmsir hinir ágætustu brautryðjendur og frumherj- ar á því sviði hafa hnigið í valinn um aldur fram. Fyrst í stað vöruðu tnenn sig ekki á því, að séu rörttgengeislarnir um lengri tíma látnir falla á óvarinn líkamann, geta þeir valdið mjög illkynjuðum bruna- sárum innan vefjanna, en af þeim leiðir aftur oft krabbamyndun, sem erfitt reynist að lækna, og hefir það orðið mörgum lækni að aldurtila. Nú er þess alls staðar vandlega gætt, að verja allt starfs- fólk fyrir geislunum, og eru ströng ákvæði um Jrað. Auk hinna markvíslegu nota röntgengeislanna til sjúkdómagrein- inga (diagnose), eru þeir einnig notaðir til lækninga á margvíslegum meinsemdum (therapi), svo sem krabba, lupus o. fl. Þá má ennfrem- 3. mynd. Skopmynd af myndatöku með röntgengeislum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.