Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 25

Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 135 ur geta þess, að mikið er larið að nota röntgengeisla til efnisprófunar í vélahlut- um, hvort í þeim séu steypugallar eða samsuðu- gallar. Eru þá teknar rönt- genmyndir al hlutnum, og má á þeim auðveldlega greina, hvort hann sé galla- aður. Árið 1900 var Röntgen höðið prófessorsembætti við háskólann í Mtinchen og tók liann því og gegndi til ársins 1920. Er Röntgen hafði gert uppgötvun sína, bárust honum víðsvegar að tilboð um geysimiklar fjár- upphæðir fyrir einkaleyfi og einkarétt til hagnýting- ar á uppgötvuninni. Þessurn tilboðum hafnaði Röntgen öllum, en veitti öllum sem vilclu, frjálsa heimild til hagnýtingar á uppgötvun sinni. Taldi hann það siðferðilega skyldu sína, þar eð hann væri til þess styrktur af almannafé að stunda vísindalegar rannsóknir, auk þess, sem hann taldi, að vísindin ættu að vera í þjónustu mann- kynsins. Lifði hann ætíð mjög einföldu og látlausu lífi og gekkst lítt upp við hinar margvíslegu viðurkenningar og heiður, sem þakklátir samtíðarmenn hans létu rigna yfir hann. Er honum, fyrst- um manna, voru veitt Nobelsverðlaunin árið 1901, lét hann þau renna til háskóla síns, og skyldi þeint varið til vísindalegra rann- sókna. Hin mikla hít gengishrunsins þýzka eftir stríðið gleypti þann sjóð, og raunar öll elni hans sjálfs, og andaðist hann fátækur og ein- mana þann 10. febrúar 1923 I Múnchen. Wilhelm Conrad Röntgen var óvenjulegur maður og um margt einstakur. Eins og áður greinir, átti liann þess margsinnis kost, að hagnast á uppgötvun sinni, en það hvarflaði aldrei að honurn. Slíkt hefði aldrei samrýmst hinni háleitú hugmynd hans um hlutverk vísindanna. Auk röntgengeislanna má þakka honum margar aðrar merkar tilraunir og athuganir, senr nægt hefðu til þess að tryggja honum verðugan sess meðal hinna fremstu eðlisfræðinga. Oll störf I. mynd. Nútfma röntgenmynd af mannshönd.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.