Náttúrufræðingurinn - 1945, Blaðsíða 34
144
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
mundu þeir áreiðanlega verða sammála um, að það væru þeir, sem
við mennirnir köllum ijallarefi, en það eru þeir refir, sem undir
flestum kringumstæðum lialda sig fjarst mönnum og mannabústöð-
um, uppi á óbyggðum og öræfum þessa lands, og standa þó jafn-
framt í hörðustu lífsbaráttunni. Þótt þeir hafi orðið að leita í mestu
harðindum niður undir byggðir mannanna og að sjónum, þegar allt
annað hefir verið þrotið, þá hafa þeir f jarlægst aftur og farið á sínar
fyrri stöðvar, þegar geislar maísólar gátu loks brætt þar snjóinn frá
hæstu börðum og steinum. ,Hér má líka bæta því við um frjósemi
refanna, að refahjónin eiga venjulega 4—0 yrðlinga árlega og yrð-
lingarnir eiga aftur afkvæmi ársgamlir sé allt með felldu.
V.
Margir virðast halda að refurinn, lyrsta spendýrið, sem nam hér
land, muni að lokum verða að víkja fyrir vélabrögðum mannanna og
hverfa og gleymast í blámóðu fortíðarirmar. En mín skoðun er sti,
að maðurinn muni í þessu efni bíða lægri hlut. Ég ætla ekki að færa
rök að þessari skoðun hér, því að það er að fara út fyrir efnið.
Hvenær, sem þeir tímar konta að okkar ástkæra land verður ekki
lengur talið byggilegt vegna kulda og hins langa vetrar, heldur að-
eins dvalarstaður hið stutta og svala sumar ævintýramanna, sem af
einhverjum ástæðum vilja sjá það og máske einnig til að fá innsýn í
löngu liðna atburði, sem hér gerðust, þá hygg ég að fyrsta og eina
rándýrið, er þeir sjá, þegar þeir koma að suðurströndinni, á svífandi
farartækjum himinvegu, verði refirnir, sem ennþá eiga hér heima í
nábýli við hin hvítu og köldu heimkynni. Hertir og stæltir af lífsbar-
áttu sinni við manninn og náttúruöflin.
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ALÞÝÐLEGT TÍMARIT UM NÁTTÚRUFRÆÐI
192 síður á ári.
ÚTGEFANDI: HIÐ ÍSLENZKA NÁTTÚRUFRÆ.ÐIFÉLAC
Gjaldkeri og afgreiðslumaður:
BIRGIK THORLACIUS
stjórnarráðsfulltrúi, Barónsstíg 63, sími 3783, Reykjavík.
Þeir, seni senda blaðinu ritgerðir, eru beðnir að hafa þær skrifaðar með bleki
eða vélritaðar. Höfundar bera ábyrgð á efni ritgerða sinna.
Öll bréf varðandi ritið sendist Dr. Sveini Þórðarsyni, Skólastíg 3, Akureyri.
Prentað í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri.