Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
55
ins haldist óbreytt. Séu notaðir nákvæmustu atómuþungar, sem völ
er á, verður reikningurinn á þessa leið:
I. Fyrir sundrun:
jH = 1.0081
gLi = 7.0182
Orka 0.15 milljón elektrónu-
volta = 0.0002
Samanlagt 8.0265
II. Eftir sundrun:
ÍHe = 4.0039
^He = 4.0039
Samanlagt 8.0078
Mismunur þessara tveggja stærða er 0.0187, og er það það efnis-
magn, sem umbreytzt hefir og orðið er að óbundinni orku. Sé það
efnismagn umreiknað í orku, fæst að hún er 17.4 milljón elektrónu-
volt (MeV), og er það í góðu samræmi við þær niðurstöður, sem til-
raunir gefa.
Um svipað leyti og þeir Cockroft og Walton gerðu sínar frægu
tilraunir í Cambridge, fékkst ungur, amerískur eðlisfræðingur, að
nafni Ernest O. Lawrence, við það vestur í Californíu, að útbúa nýtt
tæki til þess að framleiða hraðfleygar agnir til atómasundrana. Tæki
þetta, sem hann nefndi „cyclotron“, en á íslenzku hefir verið kallað
kjarnkljúfur, en eins vel mætti kalla kjarnkvarna, þar eð það enn
sem komið -er eingöngu hefir getað kvarnað smáflísar úr kjörnunum,
en ekki klofið þá, — hefir reynzt einkar vel til ætlunarverks síns
fallið, enda hlaut Lawrence Nobelsverðlaunin að launum árið 1939.
Yfirburðir cyclotron-tækisins umfram önnur tæki til framleiðslu
hraðfleygra agna, eru margvíslegir, enda eru nú flestar meiriháttar
rannsóknarstofnanir á þessum sviðum búnar að koma sér þeim upp
eða í þann veginn að gera það. Einn aðalkostur þeirra er sá, að þær
þurfa engan veginn tiltakanlega háa rafmagnsspennu, sem alltaf eru
vandkvæði á að framleiða, en þó geta þau komið rafögnum á flug
með hraða, sem samsvarar 25 milljón volta spennu. Á 12. mynd er
tækið sýnt í meginatriðum. Lawrence notfærir sér það, að brautir
rafagna svigna og verða hringlaga, ef segulsvið á milli tveggja segul-
skauta- stendur hornrétt á brautir rafagnanna. I tækinu eru tveir
helmingar af grunnum og gildurn sívölum málmöskjum, sem hafðar
eru í lofttæmda hylkinu L, og er því komið fyrir á milli skautanna
á sterkum rafsegli, SN. Sé nú örlitlu af einhverri lofttegund, t. d.
vetni, hleypt inn í hylkið, þá veldur hiti glóðarvírsins Þ því, að
vetniseindirnar rofna og verða að einstökum atómum, sem rafmagn-