Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 14
60
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Niels Bohr, sem þegar hefir verið getið í sambandi við Bohr-Rut-
herford atómulíkanið hefir einnig getið sér frægð fyrir endurbætur á
Gamow-kjarna-líkaninu. Þeir Bohr og Kalkar breyttu því þannig, að
þeir tel ja að hinar ýmsu frumagnir kjarnanna séu á ferð og flugi inn-
an hnattlaga umgerðar kjarnans á svipaðan hátt og vatnssameindirn-
ar eru á iði innan vatnsdropans og hefir líkan þetta verið kallað
vatnsdropa kjarnalíkanið. Á samsvarandi hátt og hraði vatnssam-
eindanna l’er eftir hitastiginu, eins telja þeir Bohr og Kalkar, að
liraði neutrónanna og prótónanna innan viðja kjarnans sé nokkurs
konar gerfihitastig lians. Má þá líkja því er agnir sendast út úr kjarn-
anum við það er vatnssameind gufar upp úr vatnsdropa, að meiri
líkindi eru til þess að svo fari, því hærra, sem hitastigið er, því að
þeim mun örari verður hreyfing þeirra og þar með líkindin fyrir því
að losna. í stöðugum kjörnum er hreyfing frumagnanna hæg og sam-
svarar það lág'ti hitastigi. Komi hins vegar ögn utan að með það mikl-
um hraða, að hún komi/.t yfir gígbarminn og falli síðan af heljarafli
niður að gígbotninum, þá rekst hún á hinar agnirnar í kjarnanum
og eykur það mjög á hraða þeirra, en það samsvarar því að hitastigið
liækki. Nú eru viss líkindi fyrir því, að einhver agnanna innan kjarn-
ans komizt á það öra hreyfingu, að hún sleppi upp fyrir gígbrúnina
og verða líkindin til Jjess því rneiri, sem hreyfingin er örari (sbr. 16.
mynd a og b).
í stöðuga kjarnanum hreyfast agnirnar liægt og halda sig við gíg-
botninn, hafi hins vegar utan að komandi ögn fallið ofan í gíginn, þá
kemur hún með árekstrum smáögnunum á örari hreyfingu en áður
og getur þá f'arið svo, að einhver agnanna sé í námunda við gígbarm-
inn og verði fyrir árekstri að neðan og sendist upp fyrir gígbarminn
og J^ar með út úr kjarnanum.
Þó nokkuð á annan veg er Jjessu háttað ef neutrónum er skotið að
kjarnanum. Neutrónurnar eru órafmagnaðar og verða Joví ekki fyrir
neinurn fráhryndandi verkunum af hleðslu kjarnanna. Þær geta því
nálgast kjarnana á liægri ferð og lenda inn í Jreim, ef Jjær koma of