Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 23

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 69 auka afköst plutóníumvinnslustöðvanna frá milljónustu pörtum úr grammi árið 1942 upp í kílógramma afköst árið 1945. Auk neutrónanna, sem myndast Jiegar U-235 klofnar, og sem fara í Jrað að framkalla nýjar klofnanir eða breyta U-238 í plutóníum, myndast einnig margs konar geislavirkir kjarnamolar (sjá 18. rnynd). Vegna þess hve geislavirk efni eru hættuleg heilsu manna, verður að gæta hinnar mestu varúðar við starfrækslu hlaðanna og sjá sem bezt til þess að verja alla starfsmenn fyrir áhrifum geislunarinnar. Hafa hlaðarnir Jrví verið umluktir þykkum steinsteypuveggjum. Hinir geislavirku kjarnamolar torvelda einnig afar mikið alla aðgreiningu plutóníumsins frá úraníuminu, svo að vinnslan varð að fara fram með sjálfvirkum, fjarstýrðum tækjum og' máttu menn hvergi nærri koma. Áður en til Jress kom að reistar voru vinnslustöðvar í stórum stíl, þurfti víðtækar rannsóknir á Jrví liver væru hin heppilegustu skilyrði til vinnslu, en til þeirra rannsókna höfðu menn ekki nerna sáralítið af efninu sjálfu. Þess mun löngum verða minnst, sem tákn- ræns dæmis þeirra örðugleika, sem sigrast varð á, að á hinu nýja frumefni, plutóníumi, sem Jrá var þó ekki nema tæpt milligramm til af, vissu menn betur deili efnafræðislega og eðlisfræðilega en mörg- um hinna algengari frumefna. Að þetta var svo, má að sjálfsögðu rekja til þess, að vegna geislaverkunarinnar mátti auðveldlega rekja Jrað og fylgja eftir í öllum Jreim efnabreytingum, sem Jrað var látið taka Jrátt í, enda Jrótt ekki væri nema um örlítið magn að ræða. Vegna þess hve hernaðarástæður ráku fast á eftir, vannst ekki tími til þess að safna reynslu og æfingu í tilraunastöðvum, eins og venja er til, heldur var þegar hafizt handa í stórum stíl og þegar í stað reist- ar risavaxnar vinnslustöðvar. En sá grundvöllur, sem undirbúnings- rannsóknir höfðu aflað, reyndist svo haldgóður, að svo til undan- tekningalaust fóru vinnsluafköstin fram úr áætlun og sárafáar breyt- ingar þurfti að gera. Þegar U-235 kjarnklofnar losna fleiri eða færri neutrónur, en sé klofnunin sjálfvirk og stöðug, bindast jafnmargarneutrónuroglosna úr kjörnunum. Við hverja kjarnklofnun losnar og orka og er hún um 200 MeV í hvert sinn, sem úraníum-kjarni klofnar. Orkuafköst Jrau, sem eru samfara framleiðslu eins gramms af plutóníumi á dag, eru nokkuð breytileg eftir gerð hlaðanna, en hafa venjulega numið 1500 klíówöttum (2000 hestöflum). Afköst loftkælds hlaða í Clinton- rannsóknarstöðinni 1 Tennessee-fylki eru um 2000 kílówött, en í stærsta hlaðanum, sem heimildir eru til um, en það var vatnskældur

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.