Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 30
76
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
sést hér í görðunum. En sé In'in ræktuð í sandjörð og bi'tið vel að
lienni, getur hún lifað árum saman og orðið all-stórvaxin. Villta
stúdentanellikan (Dianthus barbatus) er fjölær jurt, en sum ræktuð
afbrigði hennar eru tvíær eða hálf-einær. í garðyrkjuritum er þess
getið, að hún deyji stundum án sjáanlegra orsaka. Bendir það til að
skammlífi sumra fjölærra jurta er ekki talið eðlilegt. Einnig má geta
þess að auðvitað lifa sumir jurtaeinstaklingar sömu tegunda lengur
en aðrir, alveg eins og ekki eru allir menn jafnlanglífir.
Gangið ckki blind á meðal blómanna. Munið aðgróðurinn er und-
irstaða alls líls á jörðunni. Aðeins gróðurinn er fær um að hagnýta
orku sólarinnar til að breyta ólífrænum efnum í lífræn og skapa
þannig mat handa mönnum og dýrum. Maðurinn, herra jarðarinn-
ar, lilir á jurtum og dýrum, sem beint cða óbeint eiga allt sitt undir
gróðrinum.
Reykjavík á kyndilmessu 1945.