Náttúrufræðingurinn - 1946, Qupperneq 34
80
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
eftir. Þann 4. júní eru lijónin ásátt utn hreiðurstæði og byrjar kven-
fuglinn á hreiðurgerðinni. 5. júní á kvenfuglinri mjög annríkt við
lireiðurgerðina og á hún ein í því og nýtur í því efni engrar aðstoð-
ar karlfuglsins, einnig er hún ein um alla aðdrætti á efni til hrejð-
ursins, en að vísu er karlfuglinn henni samferða á leiðöngrum þess-
um. Fylgist liann með mestu athygli með hverri hreyfingu kvenfugls-
ins og er mjög fjörugur og órólegur; oft þenur hann úthálsoghófuð-
l jaðrir svo að liann sýnist allur stærri og glæsilegri, er hann mjög
áleitinn við kvenfuglinn, að vísu án nokkurs árangurs. Nálgist aðrir
fuglar maka hans kann hann því afar illa og gerir sig líklegan til
áfloga við þá. Kvenfuglinn sýslar jafnt og þétt við hreiðurgerðina,
dregur efnivið að og vinnur úr honum jöfnuni höndum. Til þess að
koma réttri lögun á hreiðurdældina, þrýstir kvenfuglinn sér djúptof-
an í hálfgert hreiðrið og snýr sér síðan nokkra snúninga í því. Að því
loknu liggur lnxn kyrr um stund og fer að kalla á maka sinn með
mjög lágu og hægu kalli (bí, bí, bí, bí). Um leið og karlfuglinn heyr-
ir kallið kemur hann fljúgandi að hreiðrinu og makast þau þar; að
því loknu heyrist hvellt birr, birr í karlfuglinum og flýgur nú hann
og kvenfuglinn á brott, en innan skamms er aftur tekið til óspilltra
málanna við hreiðurgerðina.
Þann 9. júní eru tvö egg komin í lneiðrið, þann 11. eru þau orðin
fjögur, og verða ekki fleiri. Kvenfuglinn hefur nú ásetur sínar, en
karlluglinn sér um að flytja henni nægilegt viðurværi, en auk þess
bregður hún sér daglega af eggjunum til þess að hressa sig upp nreð
hreyfingu og baði, einnig leitar hún sér að líkindum nokkurs viður-
væris upp á eigin spýtur til tilbrigða. 22. júní koma ungar úr eggi,
tveir að tölu, er því klaktíminn 11 dagar. Fyrstu þrjá dagana liggur
kvenfuglinn stöðugt á ungunum og sér þá karlfuglinn um að afla
næringar, sem hann ælir upp úr sér í kok kvenfuglsins, sem ælir
því síðan á nýjan leik ofan í ungana. Á fjórða degi fer kvenfuglinn
að fara af hreiðrinu stutta stund í einu til að leita sér og ungunum
næringar.
Frá 29. júní annast kvenfuglinn að heita má einn alla umsjá með
ungunum. Þann dag sést að ungarnir hafa fengið sýn, og einnig heyr-
ast þá fyrstu greinilegu hljóðin frá þeim. Kvenfuglinn situr aðeins
að nóttu til á ungunum og er farinn að hreinsa saur úr hreiðrinu.
Þegar matgjöf Lil unganna er lokið, bíður hún á hreiðurröndinni þar
til ungarnir hafa hægt sér, og flýgur síðan með saurhnoðrana yfir í
fjarsta hluta fuglagirðingarinnar, og lætur þá falla þar til jarðar.
2. júlí deyr annar unginn og annast karlfuglinn upp frá því svo til
einn jtann nngann, sem eftir er og gætir jress vel að hreiðrinu sé hald