Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1948, Blaðsíða 9

Náttúrufræðingurinn - 1948, Blaðsíða 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 151 inni við Mæra strendur, og má rekja útbreiðslu hennar alla leið suður að Sognsæ. Þar sem stórsíldin er með „föst“ hrogn og svil á sama tíma, kynþroskastigi IV—V, var eðlilegt, að blóðsíldin drægi að sér athygli, ekki sízt þar sem engin norsk síld er á sama kyn- þroskastigi og hún á þessum tíma árs. Okkur fannst, að hér gæti tæplega verið nema um eitt að ræða, nefnilega, að hér væri á ferð- inni liausthrygnandi síld eða seingjótandi sumargotssíld. Við rann- sókn á hreistrinu reyndist síldin mjög sviplík íslenzku síldirini. Blóðsíldin virðist vera fylgifiskur stórsíldarinnar, en okkur er einnig ókunnugt um, hvaðan hún kemur. Vel væri hugsanlegt, að hún kynni að hrygna við strendur Træna eða V-Lófót, en það virð- ist ekkert geta verið því til fyrirstöðu, að hún sé gengin frá íslandi til Noregs. Á síðasta ári liefur átt sér stað merkileg breyting á aldurssamsetn- ingu Norðurlandssíldarinnar, og bendir hún til þess, að norsk síld hafi verið hér á ferð, a. m. k. þetta ár. Skal nú reynt að færa sönnur á, að svo liafi verið. Sumarið 1947 fengu hafrannsóknastofur fiskimálastjórnarinnar í Björgvin tvö sýnishorn af síld frá íslandi, bæði frá NA-strönd lands- ins. Annað sýnishornið var af síld, sem veiddist á Digranesgrunni 25. júlí, en liitt var tekið við Langanes um miðjan ágúst. Unnið var rir Digranessýnishorninu við ísland, rneðan síldin var ný, en hreistrið síðan sent til Noregs, en liitt sýnishornið var saltað niður og sent til Björgvinjar. í hvoru sýnishorni voru 200 síldar. Við rannsókn á Digranessíldinni kom í ljós, að kynþroski hennar var liinn sami og sá, er íslendingar hafa fundið, að einkennir Norð- urlandssíldina á þessum tíma árs. En hið einkennilegasta við þessa síld var þó gerð hreistursins. Hreistur flestra síldanna var nákvænt- lega eins og hreistur af norskri síld bæði að því, er snerti æskuhring- ana og hringa þá, er myndast, meðan millisíldin heldur sig í liafi. Af 179 hreistrum, sem hægt var að rannsaka, reyndust 107 teljast til N-norska flokksins, þ. e. síldar, sem vex upp við strendur N-Nor- egs, en hreistur hennar einkennist af mjög skörpum og skýrum vetr- arhringum l’yrstu 2—5 árin. 54 síldar reyndust teljast til flokksins, sem vex upp við sunnanverðan Noreg, en æskuhringir þeirrar síldar eru ógreinilegir. Einar 18 síldar var ekki hægt að heimfæra til þess- ara flokka. Til þess að gera nánari grein fyrir samræminu á milli Digranes- síldarinnar og norsku vetrarsíldarinnar frá sama ári skal vísað til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.