Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1948, Blaðsíða 24

Náttúrufræðingurinn - 1948, Blaðsíða 24
166 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN algeng, um 50 tegundir, 4 ættkvíslir. Fjölbreytni blómgróðurs er afar mikil. Einkum er gerð blóma, fræja og aldina margvísleg. Stærðarmunur er líka ærinn. Alurt, naflagras, vatnsögn o. fl. eru örsmáar. Risafururnar í Kaliforníu og drekatrén (Eucalyptus) í Ástralíu verða yfir 100 m á hæð. Sumar jurtir lifa aðeins hluta úr sumri. Eikur verða mörg hundruð ára gamlar. Risafururnar verða jafnvel eitt — tvö þúsund ára, jr. e. eldri en íslands byggð. Flestar blómjurtir hafa blaðgrænu og vinna kolsýru úr loftinu sér til matar. Nokkrar eru þó biaðgrænulausar og sumar þeirra eru sníkjujúrtir, þ. e. lifa á lifandi gróðri og valda oft sjúkdómum, en aðrar lifa á rotnandi, lífrænum efnum. Fáeinar blómjurtir veiða smádýr til matar (blöðrujurt, lyfjagras og sóldögg hér á landi). Kræklurót er rotplanta. Augnfró, lokasjóðsbróðir o. fl. íslenzk grímublóm eru hálfsníkjuplöntur. Þau sjúga næringu úr' rótum jurta, sem hjá þeim vaxa. Sum blóm eru fremur einföld að gerð, t. d. blóm grasa og sól- eyja. Gerð annarra, t. d. brönugrasanna, er afar fjöibreytt og flókin. Athugum blóm brennisóleyjarinnar. Yzt og neðst í jnví eru 5 græn bikarblöð til hlífðar. Innan við þau eru 5 krónublöð fagurgul á lit. Þau stinga mjög í stúf við grænan gróðurlitinn, enda er aðalhlutverk þeirra að liæna skordýr að blómurium. Skordýrin fræva blómin og aðstoða þannig við fjölgunina. Innan við krónuna eru margir fræfl- ar, sem framleiða frjóið. Innst eru frævurnar. I þeinr myndast eggin. Þau verða síðar að fræjum og frævan að aldini. Blómin annast fjölg- unina. Hin grænu blöð jurtanna vinna kolefni til nratar úr loftinu. Stöngullinn ber blöð og blóm og gerir jreinr fært að njóta birtunnar. Ræturnar afla vatns og uppleystra steinefna og lralda jurtinni fastri í jarðveginum. Sumar vatnajurtir eru samt rótarlausar, t. d. blöðru- jurt, sem hér vex allvíða í mógröfum og pollunr. Ýmis brönugrös o. fl. jurtir eru eins konar gestagróður. Þáú vaxa á trjám frunrskóg- anna, án þess að sjúga úr jreim mat, en njóta betur birtu en ella nreð þessu móti. Ekki er vitneskjan um byggingu gróðursins fengin fyrirhafnar- laust, og nrargt er ennjrá á huldu í jreinr efnunr. Skal jrað mál rakið lítið eitt hér á eftir. Lengi framan af var gróðrinum skipt í þrennt: Jurtir, tré og runna, eða hann var flokkaður í samræmi við gagn- senrina. Blóm og aldin urðu ekki grundvallaratriði flokkunarinnar fyrr en seint og síðar nreir. Allmargar jurtir, tré og runnar eru nefndar í ævafornum ritum,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.