Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1948, Blaðsíða 45

Náttúrufræðingurinn - 1948, Blaðsíða 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 187 en á hvíldarstiginu eru þeir útteygðir, en snúast upp í gorma, styttast og gildna, þegar ski])ting á sér stað. Aðalstarf kjarnans er eklii í samltandi við frumuskiplinguna, heldur í sambandi við myndun þeirra hvata (hormóna), sem valda sköpun hinna ýmsu ættgengu eiginleika. Það er á hvildarstiginu, að kjarninn eða réttara sagt kon litþráðanna verka fyrst og fremst, en ekki við kjarnaskiptinguna. Skiptingin sjálf er í rauninni aukaatriði, þótt mikilvatgt sé, að hún fari að öllu leyti rétt fram. En vanti kjarnann, fer engin skipt- ing fram, meðal annars vegna þcss að sérstök kon stjórna frumuskiptingum. Það er ekki rétt, að ekki hafi fundizt kjarnar í lægstu étnfrumungum, og eins er það rangt, að kirni þeirra eða litni sé dreift um frymið aiit. Síðustu tvö eða þrjú árin hafa birzt í erfðafræðitímaritum allmargar ritgerðir, sem skýra frá því, að bakteríur ýmissa tegunda liafi kjarna, sem lita þaíf á sérstakan veg, og það er talið mjög óscnni- legt, að blágrSnir þörungar séu kjarnalausir. Höfundttr líffræðiágripsins hlustaði síðastliðinn vetur á dr. Jón Löve, lífefna- og gerlafræðing, segja frá þessu á fundi í Náttúrufræðifélaginu, en ef til vill hefur prentun bókarinnar þá verið komin of langt, til að þcssu yrði breytt — enda ekkert aðalatriði. 2. Vefir og liffœri. — í þessum kafla hefur höfundur komið fyrir miklttm fróðleik og réttum. Þó hefði mátt geta þess, að hið fitukennda efni, sem smitar út úr húðfrum- um jurta og ver þær útgufun, kallast í daglegu tali vax, og fyrst verið er að geta þcss, að loftaugun séu á efra borði flotbláða, hefði ekkert gert til, þótl bent væri á um leið, að svipað sé um loftaugu melgresis og krækilyngs og annarra jurta, sem verjast útgufun með leðurkenndum verptum blöðum. Kaktusar safna vatni í stofna sína og greinar og lifa í hitaeyðimörkum, en krækilyngið ber hlutfallslega vatnslítil blöð, svo að betra hefði verið að taka annað íslenzkt dæmi um jurtir, sem geyma vatn í blöðum, bví ekki melapung? 1 sambandi við litkorn dýrahúðarinnár (s. 36) er þess getið, að viss dýr geti skipt litum, og það skýrt með tilfærslu litkornanna í frumunum. Einn kennari minn í dýra- fræði hefur áratugum saman rannsakað slík litarkorn, og minnir mig, að hann hafi sýnt okkur myndir af [)ví, að þessi svonefndu litkorn gætu að minnsta kosti oft teygt úi sér og myndað langar griplur sem og dregið sig í kút, án þess að flytja sig til. Vera má þó, að þetta sé misminni mitt. 3. Viöbrögö og eölishvatir. — Þessi kafli er j stytzta lagi, og sumt, sem þar er nefnt, þarf frekari skýringa við. Leitni jurtanna verðttr skýrð mcð jurtahvötum (hormónum, sjá Nfr. I9J0, s. 165—171), og næmi mímósunnar er skýrt mcð hvötum og þrýstings- breytingum, aðallega hinu síðarnefnda. Það vantar frásagnir af jurtahvötum yfirleitt og eins af áhrifum dags og na tur á jurtirnar, þýðingu dagslengdarinnar (fotoperio- dism) og öðru svipuðu, sem talið er til hins mikilvægasta í jurtalíffræði nútímans. 4. Fjölgunin. — Þessi kafli er einn mikilvægásti kafli bókarinnar, og vafalaust er vandrataður hinn gullni meðalvegur við samningu hans, ekki sízt sökum þess að efni hans er sem stendur slfelldum breytingum undirorpið. Sem betur fer hefur höfundur þó sneitt hjá aukaatriðunum og tekizt að semja sæmilegt yfirlit um þessi grundvallar- atriði líffræðinnar. Að sjálfsögðu hefur hann þó strokizt við nokkur smásker, sem illt er að komast hjá ósnortinn, nema erfðafræðingar eigi í hlut, en allt ct' það þó niein- lítið. Áður hefur vcrið minnzt á kjarnanetið, sem cr ekki lil. Litþræðirnir klofna á 4. stiginu, en sá klofningur kemur ekki í Ijós fyrr en á 1. stigi næstu skiptingar á eftir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.