Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 31
Guðmundur Kjartansuon: Heimsókn tékkneskra vísindamanna Eins og flestum mun enn í fersku minni kom allstór hópur tékkn- eskra náttúrufræðinga hingað til lands í sumar. Þessi leiðangur vakti rneiri athygli og umtal en títt er um erlenda rannsóknarleiðangra, sem hingað koma. Það átti hann líka skilið, því að hér var um mjög merkilegar rannsóknir að ræða og jafnframt nýstárlegar — a. m. k. fyrir okkur, senr höfum því miður slæma aðstöðu til að fylgjast með framvindu vísindanna. En raunar var það ekki ágæti leiðangursins, sem athyglinni olli, heldur óheppileg og miður kurteisleg afskipti íslenzkra yfirvalda af honum. Idið litla ágrip, sem hér fer á eftir um rannsóknir þessa leiðangurs, er tekið saman eftir frásögn tveggja leiðangursmanna, V. Struzka veðurfræðings og F>. Váleks jarðvegsfræðings, sem heimsóttu mig seint í júlímánuði, og þó að meira leyti úr stuttri skrifaðri skýrslu, sem fararstjórinn, E. Hadaé, lét Náttúrufræðingnum í té. Leiðangursmenn voru 16 að tölu og að auki gestur þeirra, V. j. Stanék kvikmyndari. Þeir kornu til Reykjavíkur 24. júní og höfðu þá þegar fyrir atbeixra Rannsóknarráðs fengið leyfi ríkisstjórnar- innar til rannsókna á svæðinu milli Hvalfjarðar og Borgarfjarðar frá yztu nesjum inn til jökla. Þeir völdu sér þó aðeins nokkurn hluta þessa svæðis, og liggja takmörk hans um Sandkluftavatn, Skjaldbreið, Þórisdal, Kaldadal, Reyðarvatn, Þverfell, innsta hluta Lundariæykjadals og Kvígindisfell. Sumir leiðangursmanna skruppu þó í rannsóknarferðir út fyrir þessi takmörk, t. d. á Hlöðufell og Botnssúlur og niður með Botnsá. Á þessar slóðir kom allur þorri leiðangursmanna 26. júní. Þeir settu upp aðalbækistöð sína undir Biskupsbrekku við Kaldadalsveg og dvöldust þar við rannsóknir fram í lok ágústmánaðar.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.