Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 32

Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 32
Reglur um vísindalegar rannsóknir á Grænlandi Enda þótt ísland sé á engan hátt lokað land, eru rannsóknarferðir útlendinga háðar lcyfisveitingum og standa undir eftirliti Rannsóknarráðs ríkisins. Slíkar rannsóknar- ferðir hafa farið mjög í vöxt hin síðari ár, en ekki hafa verið birtar neinar reglur, sem þessum mönnum hafi verið settar. I>að er því allfróðlegt að vita, hvaða reglur Danir hafa sett um ferðir og rannsóknir á Grænlandi, en þangað sækja útlendingar einnig mjög til rannsókna. Jón Eyþórsson veðurfræðingur gerði Náttúrufræðingnum þann greiða, að snara reglum þessum á íslenzku. Reglur um vísindalegar rannsóknir á Grœnlandi 1949 Eftirfarandi reglur eru birtar í Kundgörelser vedrörende Grön- lands styrelse, 1949, nr. 2, 143. bls. Hér eru þær teknar eftir The Polar Record, July 1950. Umsjónarnefnd vísindarannsókna á Grænlandi (Kommissionen for videnskabelige undersögelser i Gr(jnland) gerði eftirfarandi ályktun á fundi sínum h. 28. marz, 1949. 1. Nefndin álítur, að allar umsóknir um leyfi til vísindarann- sókna á Grænlandi beri að leggja fyrir nefndina, áður en yfir- stjórn Grænlandsmála tekur ákvörðun um þær. 2. Framvegis mun nefndin hafa hliðsjón af eltirfarandi atriðum í sambandi við umsóknir erlendra vísindamanna um rannsókn- arleyfi á Grænlandi: a. Nefndin vill því aðeins veita slík leyfi, að umsækjandi sé hæf- ur vísindamaður, enda hafi umsókn lians hlotið meðmæli við- eigandi vísindalegra aðila í heimalandi hans. b. Samþykki verður ekki veitt, ef viðfangsefni það, sem um er að ræða, mundi leiða til tvíverknaðar við verkefni, sem dansk- ir vísindamenn hafa þegar með höndum í Grænlandi, eða ern líklegir til að taka upp innan skannns.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.