Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 36

Náttúrufræðingurinn - 1951, Blaðsíða 36
130 NÁTT Ú RU FRÆÐING URINN og fátæklegar fram um rniðja 19. öld, en þá voru það náttúrufræð- ingarnir Steenstrup 1839—40 og Torell 1857, er söfnuðu hér all- miklu og lögðu góðan grundvöll að framhaldandi rannsóknum. Elztu heimildir um íslenzkar sæskeljar er að finna í De Mirabili- bus Islandiae eftir Gísla Oddsson (dáinn 1638), og í Ein Slutt undir- rietting um Islands Adskilianlegar náttúrur, skrifað laust eftir 1640. eftir Jón Guðmundsson. En þeir geta aðeins um 8 tegundir, sem nú eru mjög algengar umhverfis land allt. í ferðabók Eggerts Olafssonar og Bjarna Pálssonar 1752—57 er aðeins getið 10 tegunda. Þetta sýnir, að skeldýraathuganir þess tíma náðu í hæsta lagi niður að neðri fjörumörkum. Eftir fyrsta tug 20. aldarinnar kemst hér fyrst verulegur skriður á þekkingu skeldýra- lífsins með rannsóknum Guðmundar G. Bárðarsonar náttúrufræð- ings. En hann er sá íslendingur, sem mest og ötulast hefur unnið í þágu íslenzkrar skeldýrafræði. Og honum eigum við einnig að þakka flest íslenzku skeldýraheitin, en þau liafa stutt mjög að vaxandi áhuga alþýðunnar á þessum skrautlegu verum sjávarins. Fyrri hluti eða meginmál heftisins er svo tegundaskráin. Hverri tegund fylgir tilvísun í heimildarrit (en þau eru tilfærð í lok heftis- ins) og samnefni, ýtarleg útbreiðsla hennar við strendur landsins niður að 400 metra dýpi (þær tegundir sem dýpra eru teljast til djúpfánunnar) og útbreiðsla hennar við strendur annarra landa. Loks er lengd hverrar tegundar tilgreind. Alls neí'nir höfundurinn 88 tegundir auk nokkurra afbrigða, sem fundizt hafa lifandi innan 400 m dýptarlínunnar. Þar að auki eru nefndar 6 tegundir, sem höfundur telur til djúptegunda, en álítur, að við nákvæmar rannsóknir muni finnast á landgrunninu, af því að tómra skelja helur orðið þar vart. Lítill vali mun vera á því, að ein þessara tegunda að minnsta kosti (Psammobia ferroensis Chemn.) sé grunnsævistegund við suðvesturströndina, því að ferskar skeljar hafa nokkrum sinnum fundizt þaðan í fiskamögum. Þá telur höfundur 4 djúpsævistegundir, er hann hyggur að vænta mætti af grunnsævi, þar sem þær hafa fundizt í nánd við það, en þær eru: Limopsis minuta Lima subovata Lima jeffreysi Lyonsiella abyssioola Af þessum 88 sæskeljum hafa 10 aldrei verið skráðar sem íslenzk- ar. Þær teljast til 6 ætta og eru sem hér segir:

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.