Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 3
Sigurður Þórarinsson:
HVERFJALL
I. Gerð Hverfjalls
Merkilegt íjall Hverfjall
Margt ber merkilegt fyrir augu þeirra, er líta Mývatnssveit í fyrsta
skipti, en þó get ég, að flestum muni verða einna starsýnast á Hver-
fjall. Þetta sérkennilega fjall setur svo svip á sveitina og er svo áber-
andi, hvaðan sem litið er, að það hlýtur að vekja eftirtekt og for-
vitni, enda hefur flestum erlendum ferðamönnum, sem skrifað hafa
um Mývatnssveit, orðið mjög tíðrætt um það fjall.
Af eðlilegum ástæðum hefur Hverfjall þó einkum vakið athygli
jarðfræðinga, og mun ekkert íslenzkt eldfjall, að Heklu undantek-
inni, vera jafnumskrifað í ritum eldfjallafræðinga. í ýmsum
kennslubókum og handbókum í eldfjallafræði, s. s. bók John W.
Judds: Volcanoes (1881), bók K. Schneiders: Die vulkanischen Er-
scheinungen der Erde (1911), hinni miklu eldfjallafræði F. v.
Wolffs: Der Vulkanismus (1931) og hinni ágætu bók A. Rittmanns:
Vulcani. Attivitá e genesi (1944), er Hverfjall tekið sem dæmi
(typus) sérstakrar gerðar eldfjalla, sem á þýzku kallast Wallberge eða
Ringwall-Vulkane, á ensku Tuff rings, en tékkneski eldfjallafræð-
ingurinn K. Schneider kallaði þau Homate. Meðal slíkra fjalla er-
lendra má nefna Gli Astroni og Monte Nuovo á Brímavöllum
(Campi Flegrei) norðvestur af Napólí. Astroni er um 240 m hátt og
meðalþvermál gígsins um 1.7 km. Monte Nuovo, sem myndaðist
1538, er 120 m hátt og meðalþvermál gígsins 0.9 km. Á sama svæði
eru og leifar af risafjalli sömu gerðar, Piperno, og er meðalþvermál
gígsins talið um 12 km. Mjög lík Hverfjalli eru Diamond Head (230
m hátt) og Koko, á eynni Oahu, einni af Hawaiieyjum, skammt frá
Honolulu. Til Hverfjallsgerðar eru og taldir nokkrir gígir á Auck-
land-eiðinu á norðureyju Nýja Sjálands, m. a. Crater Hill og Lake
Pupuke.
NáttúrufrœÖingurinn, 3. h. 1952
8