Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 14

Náttúrufræðingurinn - 1952, Side 14
124 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 6. mynd. Skorningur í norðurvegg Hverfjalls innanverðum, um 70 m frá gígbomi. Lengd skóflunnar 1 m. — Ravine on the inner sloþe of the N craterwall of Hverfjall. Lengt of sþade 1 m. — Ljósm. S, Þórarinsson. lögótt að sjá. Líkist það mjög sumu tertíeru blágrýti. Samkvæmt efnagreiningu, sem Jóhann Jakobsson hefur gert, er kísilsýrumagn þess 50.26%. 5—10% af stærri steinum utan á fjallinu eru úr dílóttu hrauni, en dílarnir eru yfirleitt minni en í dílahraunum á Mývatns- svæðinu, og líkjast steinarnir meira dílagrjóti því, sem finna má í jökulbotnurð í nágrenninu, m. a. á hæðunum SA af Kröflu, og tel ég líklegt, að tiltölulega lítið af þessu grjóti sé úr póstglacíölum hraunum. Þrátt fyrir allítarlega leit hef ég hvergi, fremur en Trausti, fundið mola af móbergi utan á Hverfjalli, og er mér ráðgáta, hvar Barth hefur fundið sína móbergsbreccíu. Þetta lag af lausagrjóti og sandi er mjög þunnt utan á fjallinu, þegar upp undir gígbanninn dregur, og sést á einstöku stað á undirlag úr túffi. Þó er það þynnra

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.