Náttúrufræðingurinn - 1952, Síða 16
t
126
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
8. mynd. Vikur-
stykki úr toppi
innri keilunnar 30
sm undir yfirborði.
— Pumice frag-
ments from the
summit of the
inner cone 30 cm
beneath the sur-
face. — Ljósm. T.
Tryggvason.
Þessi korn, sem á máli eldfjallafræðinga kallast lapilli, liggja í meira
eða minna greinilegum lögum. Á einstöku stað má finna í túfflög-
unum svört, vikurkennd stykki, meira eða minna kúlulaga (bombur)
10—25 sm í lengsta þvermál. Túffið er tiltölulega laust í sér og
molnar auðveldlega. Eins og 6. mynd ber með sér, eru í þessu lag-
skipta túffi steinar af ýmissi stærð, og virðast þeir verða nokkru
þéttari eftir því, sem neðar dregur í gígveggina. Er þarna að finna
allar þær tegundir af grjóti, sem finna má í ruðningnum utan á túff-
inu, og virðist mér þessi staðreynd, ásamt afstöðu ruðningsþekjunn-
ar til undirliggjandi túffs, eins og hún kemur fram á 6. mynd, vera
ein sér næg til að sýna, hvernig á þessari ruðningsþekju stendur.
Hún er blátt áfram veðruð á staðnum (in situ) úr undirliggjandi
túffi. Og sjálft hið lagskipta túff með grjóti því, sem í því er, ber