Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 32

Náttúrufræðingurinn - 1952, Blaðsíða 32
140 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Fagurfifill (Bellis perennis). Nýlegar sáðsléttur á Gilsárteigi. Krossgras (Senecio vulgaris). Garður á Sandbrekku. Af framantöldum tegundum eru samkvæmt Flóru íslands, III. ótgáfu, þessar fjórar áður ófundnar á Austurlandi: Lensutungljurt (Botrychium lanceolatum), Vatnsnœli (Scirpus acicularis), Fölvastör (Carex livida) og Mýraertur (Lathyrus palustris). Gvendarstöðum, 20. apríl 1952. Eldgjá, Katla og eldstöðvarnar í Mýrdalnum Síðastliðna páska kom Árni Stefánsson, bifvélavirki, flugleiðis austan úr Óræfum. Flogið var yfir Mýrdalsjökul norðanverðan. Sól var lágt á lofti og drættir landslagsins óvenju greinilegir. Segist Árni þá hafa séð greinilega móta fyrir framhaldi Eldgjár langt inn undir Miýrdalsjökul, og hafi sér virzt stefnan vera á Kötlu. Pálmi Hannesson, sem er þaulkunnugur Eldgjá, segir mér, að gjáin breyti dálítið urn stefnu, fái suðlægari stefnu — við Rauðabotn, rétt norðan undir Svartafelli. Segir hann, að hún haldi þeirri stefnu eitthvað inn undir Mýrdalsjökul. Ekki er ólíklegt, að þynn- ing Mýrdalsjökuls vegna hins aukna lofthita síðustu áratugina valdi því, að nú megi sjá framhald Eldgjár lengra suður eftir jöklinum en áður var hægt. í þessu sambandi er þess að geta, að ungur brezkur jarðfræðingur, Robson, sem rannsakað hefur Eldgjá tvö síðastliðin suinur, hefur látið í ljós þá skoðun, að Katla sé raunverulcga suðvcsturendi Eldgjár. En svo virðist nú sem þessi tektóníska goslína nái e. t. v. mun lengra. Sé dregin lfna frá Svartafelli til Kötlu, sem liggur allmiklu norðvestar en nafn hennar á herforingjaráðskortinu bendir til, sker framlenging þeirr- ar línu eldstöðvar þær, sem eru skammt austan við Skeiðflöt í Mýrdal. Gíghóls, „Sturlu- gígs“, sem er þar við þjóðveginn, milli Ketilsstaða og Litla-Hvamms, var getið f síðasta hefti Náttúrufræðingsins, og við nánari athugun nú í júní fann ég tvö lítil eldvörp að auki, um 1 km sunnar, á s.k. Vörðum (þessum eldstöðvum verður væntanlega lýst nán- ar i einhverju af næstu heftum Nfr.). Sú staðreynd, að þessar eldstöðvar liggja á fram- haldi línunnar Eldgjá—Katla, bendir til gostektónísks sambands við þær eldstöðvar, en þess er þó að geta, að milli Reynisfjalls og Hiittu, í s.k. Grafarhól, hefur einnig gosið eftir að ísa síðustu fsaldar leysti, og cr sú eldstöð alveg ein sér, cn virðist liggja á NNV—SSA lægri brotlínu, sem er samhliða línu, er tengir gígina á Vörðum við „Sturlu- gíg''- Þess er og að geta, að sé dregið framhald þeirrar stefnu, sem Eldgjá hefur norðan Svartafells, sker sú lína hjarnsvæði Sólheimajökuls, en annálar geta gosa í Sólheima- jökli 1245 og 1262, og frásögn Landnámu af Loðmundi gamla og Þrasa í Skógum bendir til, að þar hafi einnig gosið á Landnámsöld. Má þvi telja næstum öruggt, að eldstöð sé undir Sólheimajökli. Það virðast því nokkrar líkur fyrir því, að tvær gostektónískar línur liggi undir Mýrdalsjökul þveran og skerist við Svarlafell. Náið tektónískt samband milli eldstöðva er einkennandi fyrir vúlkanisma íslands, og hefur Þorvaldur Thoroddsen öðrum frem- ur leitt rök að þvf. S. I>.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.