Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 21
FUGLAMERKINGAR NÁTTORUGRIPASAFNSINS 15 þurfa ekki annað en snúa sér til náttúrugripasafnsins með ósk um að fá send merki og leiðbeiningar um merkingarnar. 1 þessu sambandi skal þó að marggefnu tilefni eftirfarandi tekið fram: Þeir, sem hafa hug á að gerast liðsmenn við merkingarnar, verða að gera sér Ijóst, að það er þýðingarlaust að taka slíkt starf að sér, nema menn séu reiðubúnir til að fórna nokkrum tíma og fyrirhöfn til starfsins. Menn ættu yfirleitt ekki að taka að sér merkingar, nema þeir treysti sér til að merkja nokkra tugi fugla á ári. Æskilegast væri, að lágmarkið væri ekki undir 50 fuglar á ári. Með tilliti til kostnaðar og fyrirhafn- ar borgar sig alls ekki að senda þeim mönnum merki og önnur gögn varðandi merkingamar, sem aðeins merkja örfáa fugla á ári. Annað atriði, sem sérstök ástæða er til að brýna fyrir mönnum, er að gæta merkjanna vel og skila ónotuðum merkjabirgðum, þegar menn hætta að fást við merkingar. Á þessu hefur oft og einatt viljað vera talsverður misbrestur. Og þetta hefur jafnvel gengið svo langt, að það er ekki ótítt, að menn hafi látið senda sér merki og önnur gögn varðandi merkingarnar, án þess að nokkuð hafi orðið úr merk- ingum og án þess að merkjunum hafi verið skilað. Þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir og mikla fyrirhöfn hefur oft reynzt ókleift að ná aftur ónotuðum merkjabirgðum hjá mönnum, sem hættir eru merkingum eða hafa jafnvel aldrei sinnt þeim, enda þótt þeim hafi verið send merki samkv. eigin ósk. Að þessu hafa verið svo mikil brögð, að nær 10 þúsund merki hafa tapazt á þenna hátt, síðan merkingar hófust hér á landi. En þetta þýðir, að nær þriðja hvert merki hefur glatazt af þessum ástæðum. Þetta er mjög tilfinnanlegt tjón fyrir merkinga- starfsemina, því að bæði eru merkin dýr og svo hafa oft verið miklir erfiðleikar á öflun þeirra. Þessu verður að kippa í lag, og framvegis verður því ríkt gengið eftir því, að menn endursendi ónotaðar merkja- birgðir um leið og þeir hætta merkingum, eða ef menn vegna ófyrir- sjáanlegra orsaka hafa ekki getað sinnt þeim. Framvegis verður því ekki hægt að leyfa mönnum að liggja árum saman með merkjabirgð- ir án þess að merkja nokkurn fugl. Um leið vil ég skora á alla þá, sem annað hvort eru hættir merkingum eða hafa jafnvel aldrei sinnt þeim, að endursenda nú þegar ónotaðar merkjabirgðir, er þeir kynnu að hafa undir höndum. Síðan stríðinu lauk, hefur verið miklum erfiðleikum bundið að fá gerð merki fyrir safnið. Var reynt að fá merki keypt í ýmsum Ev- rópulöndum, en það brást, nema hvað lítið eitt af merkjum fékkst keypt í Sviss 1947. Af þessum orsökum hefur verið hörgull á merkj-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.