Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 22
16
NÁTTtJRUFRÆÐINGURINN
um tvö síðastliðin ár, og hefur þvi ekki alltaf verið hægt að fullnægja
eftirspuminni eftir merkjum. Nú hefur verið ráðin bót á þessum erf-
iðleikum. Hafa merki verið keypt í Bandaríkjunum, og em nú næg-
ar birgðir til af öllum stærðarflokkum. Einnig mun vera öruggt, að
hægt verði að fá merki í Bandaríkjunum framvegis.
Skýrslur um fuglamerkingarnar og árangur þeirra hafa hingað til
verið birtar í skýrslum náttúmfræðifélagsins eða sem fylgirit þeirra.
Eins og kunnugt er, afhenti náttúmfræðifélagið ríkinu náttúrugripa-
safnið til eignar og umráða í ársbyrjun 1947. Um leið var ákveðið,
að fuglamerkingarnar skyldu fylgja safninu, og siðan hafa þær verið
náttúmfræðifélaginu óviðkomandi. Eigi að síður hefur það orðið að
samkomulagi milli stjórnar náttúrufræðifélagsins og náttúmgripa-
safnsins, að skýrslur um merkingarnar og árangur þeirra verði fram-
vegir birtur í Náttúrufræðingnum, sem nú hefur verið gerður að fé-
lagsriti náttúrufræðifélagsins í stað félagsskýrslunnar, sem hætt er
að koma út sem sjálfstætt rit.
Merkingarnar 1947—1949
Árið 1947 vom alls merktir 2205 fuglar og teljast þeir til 38 teg-
unda (sbr. töflu I). Af þeim voru 271 (12.3%) fullorðnir fuglar, en
1934 (87.7%) ungar. Mest var merkt af duggöndum (311) og skúf-
öndum (302). Næst koma svo kríur (276), óðinshanar (152), hávell-
ur (138), hrafnsendur (115), þúfutittlingar (110) og hettumáfar
(103). Hjá öðmm tegundum var fjöldi merktra fugla innan við
hundrað. Árið 1947 vom liðsmenn við merkingarnar 9 (sbr. töflu IV).
Flesta fugla eða 1823 merktu Jóhannes og Bagnar Sigfinnssynir,
Grímsstöðum við Mývatn. Næstir þeim að afksötum ganga Jón og
Sveinbjöm Blöndal (146) og Sigurður Gunnarsson (115).
Árið 1948 vom alls merktir 1049 fuglar og teljast þeir til 35 teg-
unda (sbr. töflu II). Af þeim voru 209 (20%) fullorðnir fuglar, en
840 (80%) ungar. Mest var merkt af snjótittlingum (104), og vom
það nær eingöngu fullorðnir fuglar, er veiddir vom í net eða gildrur.
Hjá öðmm tegundum var fjöldi merktra fugla innan við hundrað.
Árið 1948 vom liðsmenn við merkingarnar 10 (sbr. töflu IV). Flesta
fugla merktu Grímsstaðabræður, Jóhannes og Bagnar Sigfinnssynir,
eða alls 436. Næstir þeim að afköstum ganga eins og árið áður Jón
og Sveinbjöm Blöndal (303) og Sigurður Gunnarsson (138).