Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 47
SÆSKEL FUNDIN VIÐ ISLAND
41
suður með ströndum Evrópu og alla leið til Kanaríueyja og Norður-
Afríku. Hún er við Færeyjar og Bretlandseyjar, í Eystrasalti, Mið-
jarðarhafi, Svartahafi, Kaspíhafi og í Aralvatni. Fáar sæskeljar geta
lifað í jafnlítið söltu vatni og hún. Hún grefur sig niður í efjuna
eða sandinn við strendurnar, venjulega á 2—4 m dýpi. Lirfuskeiðið
stendur yfir í 15—30 daga.
Cardium edule hefur fundizt bæði í Hollandi og í Bretlandi í skelja-
lögum frá plíocen-tímanum. Og í yngri
skeljalögum er hún víða mjög algeng. Hér-
lendis hefur tegundin aftur á móti aldrei
fundizt, hvorki í Tjömeslögunum (frá Plío-
cen) né i skeljalögum frá Purpura-skeiðinu
eftir jökultímann, þrátt fyrir liagkvæm lífs-
skilyrði þessara tímabila.
Séð frá sjónarmiði íslenzkrar fornskelja-
fræði, þá tel ég mjög vafasamt, að umrædd tegund hafi borizt hing-
að sem sviflirfa, heldur hafi hún komið hingað með flutningaskipi
sem hálfvaxta eða fullvaxta skeldýr, og þó ekki fyrr en í mesta lagi
fyrir 20—30 árum. Þar sem skeldýralíf hefur verið betur rannsakað
í Faxaflóa en annars staðar hér við land, er harla ósennilegt, að svo
stór grunnsævistegund sem Cardium edule er, hafi getað leynzt sjón-
um manna, sé hún gamall innflytjandi.
Frekari upplýsingar héðan um þessa nýfundnu tegund væru ann-
ars mjög æskilegar. Höfundur þessarar greinar vill því vinsamlega
mælast til þess við alla þá, sem safna skeldýrum, að þeir geri aðvart,
ef þeir finna einhverja „grunsamlega" báruskel við vestur- eða suð-
urströnd landsins. Bezt væri að senda skelina í Fiskideild Atvinnu-
deildar háskólans til frekari athugunar.
SUMMARY :
The paper deals with CarcLium edule L. This bivalve is now for the first time
found in Iceland in two places on the shore (Except for one eroded valve on the
beach of Heimaey, Vestmannaeyjar, 50 years ago.), viz: at Hofgarðar on the
south-coast of Snœfellsnes (one specimen without animal) and in Fossvogur in the
neighbourhood of Reykjavík (three specimens without animal and three separated
valves). The largest specimen found was 33,5 mm long. All the specimens were
united by the cartilage, and they looked so fresh, tliat they must have been alive
some weeks ago.
As this species has never been met with fossil in Iceland, the author helieves
that it has by accident been brought alive to this country hy ships, most likely
within the latest 20—30 years.
Hjarlaskel (Cardium edule).