Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1953, Síða 64

Náttúrufræðingurinn - 1953, Síða 64
56 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN anir dr. Sigurðar Þórarinssonar. I einu atriði lít ég þó nokkuð öðrum augum á málið en dr. Sigurður, þótt það sé ef til vill meira orða- munur en eðlis, en það er á uppruna hólsins og hryggsins niðri í gíg- skálinni. Tek ég hér sem næst orðrétt það, sem ég hef skrifað hjá mér um þetta á staðnum: Gígskál Hverfjalls er engan veginn eins regluleg og ætla mætti af útliti fjallsins. Að sunnan eða suðvestan gengur öxl eða bunga inn í skálina og í framhaldi af henni er allhár hryggur eða rani þvert yfir skálina, er endar að norðan í stórum hól. Láta mun nærri, að hæð hryggsins sé 15—20 m, en að hóllinn sé 30—40 m hár. Hryggurinn og hóllinn skipta gígskálinni því nær í tvennt, og eru hlutarnir að- eins samtengdir af mjórri rák norðan við hólinn. Hryggurinn og hóll- inn eru úr mjög svipuðu efni og gíghringurinn, vikri og vikursandi með nokkurri íblöndun af blágrýtismulningi. Eftir að hafa komið niður í gíginn, er ég ekki í vafa um, að kenn- ing Grossmanns er fjarstæða. Hólinn og hrygginn í Hverfjalli tel ég þannig til orðna, að gígurinn er í Taun og veru tvöfaldur, gígopin hafa verið tvö, sitt hvoru megin við hólinn. Vegna þess, hve nærri þau liggja hvort öðru, verður gíghringurinn aðeins einn og víkur lítið frá réttum hring; þó hefur einnig hlaðizt upp á milli gosopanna hryggur, sem aldrei gat orðið hár, vegna þess, hve fjarlægðin milli þeirra er lítil. Leifarnar af þessum skilvegg eru hryggurinn og hóll- inn niðri í gígnum. Þetta er ekkert einsdæmi. Viti við Kröflu eru tveir gígir, er að nokkm renna saman, en þar hefur fjarlægðin milli gosopanna þó ver- ið nokkru meiri og gosin missterk, svo gígirnir eru meira aðgreindir. Kverkfjöll (Hveradalurinn). 1 bók minni um Ódáðahraun hef ég lýst hveradalnum í vestan- verðum Kverkfjöllum, eins og hann kom mér fyrir sjónir sumarið 1941 (Ódáðahraun I, bls. 142—145 og II, bls. 186—188), og er sú lýsing studd nokkrum ágætum myndum úr dalnum og umhverfi hans. I áðurnefndri grein i 3. hefti Náttúrufræðingsins 1950, lýsir dr. Sig- urður Þórarinsson þessum stöðvum nokkuð, eins og hann sá þær 12/8. 1946. Ég kom aftur á þessar slóðir 9. júlí 1946, eða röskum mánuði áður en dr. Sigurður var þar, og með því að þá var allmikið öðruvísi umhorfs í suðurenda dalsins, heldur en mánuði síðar, þykir mér rétt, að lýsing á því, sem ég sá þarna, komi fram. Því miður mistókust með öllu myndir, sem ég tók þarna, svo að þeirra verða engin not.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.