Náttúrufræðingurinn - 1953, Síða 66
58
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
inn og aflagaður. f norðvestanverðu tjarnarstæðinu þröngt, en lík-
lega djúpt, gufuop. Árið 1941 var kyrrlátur blár leirhver skammt norð-
an við tjömina, nú voru þar tveir stórir vellandi leirhverir og lá frá
þeim djúp skora suður í tjarnarstæðið. Hitinn í gjádalnum virðist hafa
vaxið og sást víða gufuútstreymi. tlr stóra hvernum í þrengslunum í
miðri gjánni rauk ákaflega. Þar virðist nú ólgandi leirtjöm, en í suð-
vesturhomi hennar kom upp gild gufusúla með miklum gný, ann-
ars sást ógerla, hvemig þar hagaði til.
Aukin leysing úr jöklinum hefur vafalaust valdið því, að vatn var
komið í tjamarstæðið 12. ágúst.
Hlaup í Jökulsá á Fjöllum hafa vafalaust stundum orðið vegna
eldsumbrota, en mjög er líklegt, að framrás jökullóna hafi orsakað
sum þeirra. Þannig má benda á, að stórt og djúpt jökullón hefur eitt
sinn verið norður af Kverkfjöllum, við upptök Kreppu, sem gæti hafa
valdið stórhlaupum. Vatnshjallar sýna, að það hefur minnkað í
áföngum. Það var ekki með öllu horfið 1918, er dr. Trautz gekk á
Kverkfjöll. Samkvæmt uppdráttum herforingjaráðsins, á að hafa ver-
ið stórt jökullón við jökulröndina upp af Kverkárnesinu, en það var
með öllu horfið 1946, en nokkm vestar sáust merki eftir smálón, sem
nýlega hafði tæmzt.
Enn um Hverfjall
Þar eð Hverfjall hefur aftur borið á góma, vildi ég bæta nokkrum
orðum við mín skrif um það fjall í síðustu heftum Náttúrufræðings-
ins. Þess er þá fyrst að geta, að eftir að ég ritaði fyrri hluta greinar
minnar, rakst ég á eldri heimild um Hverf jall en þar er getið. í lýsingu
Þingeyjarsýslu (Description over Norder Syssels udi Island) eftir Jón
sýslumann Benediktsson, dagsettri að Rauðuskriðu 18. júní 1747 (Is-
lands geografiske Beskrivelse. Þjskjs. 221) segir svo: „Til osten for
Mijvand kaldes Hverfiæld, lidet i Circumferencen, men dog af Mærk-
værdighed, thi naar man kommer der op kand sees lige som een
Skaal nedunder, hvilken meenes lige saa dyb indentil som Fiældet
er höyt udenfoer". Þetta sker úr um það, að fjallið hét Hverfjall eða