Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 67

Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 67
ENN UM HVERFJALL 59 Hverfell, þegar þeir Eggert og Bjarni fóru þar um, en Sandfellsnafn þeirra á misskilningi hyggt, ef það á við Hverfjall. Þess var einnig getið í ritgerð minni, að elzta mynd, sem mér væri kunn af Hverfjalli, væri myndin í Ferðabók Preyers og Zirkels frá 1862. Við þetta vildi ég bæta þeim upplýsingum, að þessi mynd er upphaflega gerð af dönskum málara, Carl Emil Baagöe (1829—1902). Baagöe þessi var mikilsmetinn málari á sinni tíð og kunnastur fyrir sjómyndir sínar, sem eru víða á opinberum söfnum, bæði i Danmörku og Englandi. Hann dvaldist hérlendis sumarið 1855 og fór þá víða um land, m. a. til Mývatns. Þykir mér ekki óliklegt, að hann hafi verið í ætt við faktor Baagöe á Hiisavik, sem Thienemann og fleiri geta um í ferðabókum sínum. Á næstu árum eftir hingaðkomu hans birtust eftir hann margar tréskurðarmyndir í Illustreret Tidende. Þar er m. a. mynd af Beykjahlíðarkirkju, Goðafossi, Uxahver og Helgafelli í Vestmannaeyjum. Hann gerði einnig mynd af gosinu hjá Kraka- tindi 1878, séðu af sjó, og er sú mynd gerð eftir teikningu skipstjórans á póstskipinu Valdimar. Hafa myndir Baagöes komizt í ýmsar ÚL lendar ferðabækur um Island. Hverfjallsmyndin í bók Preyers og Zirkels er dálitið breytt frá þeirri Hverfjallsmynd Baagöes, sem ég hef séð, einkum bakgrunnurinn, en þó auðsætt, að hún er eftir Baagöe. Má vera, að hann hafi gert fleiri en eina mynd af fjallinu. Hvað viðvíkur grein Ölafs Jónssonar, þá gleður það mig vitanlega, að Ölafur, sem er manna fróðastur um eldstöðvar nyrðra, er mér sammála um myndun Hverfjalls í meginatriðum. Hins vegar held ég enn við skoðun mína um myndun innri keilunnar, sem er dálítið frá- brugðin skoðun hans, svo sem sjá má af þversniði mínu af fjallinu. Ólafur telur innri keiluna vera leifar af skilvegg milli tveggja gíga, en ég tel hana vera raunverulegan gíghól, hlaðinn upp í lokahrinu Hverfjallsgossins. S. Þ.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.