Náttúrufræðingurinn - 1953, Side 71
RITSTJÓRARABB
63
sjaldan þeir hafa tök eða efni á að hitta kollega sína erlendis. Má vera,
að það sé svo dýrt að vera í Unesco, að það borgi sig ekki, en fróð-
legt væri að fá greinargerð um það frá þeim aðilum, er hafa ráðið
því, að við höfum ekki sótt um þátttöku.
Fyrir tveimur árum var mikið íþróttamót háð í Bryssel. Þangað
fór af íslandi flokkur af keppendum snjöllum, fékk þar á sig töluvert
nafn og varð landi sínu til sóma. Um sama leyti var alþjóðamót
jarðeðlisfræðinga háð i þeirri sömu borg. Undir jarðeðlisfræðina heyra
ýmsar þær greinar náttúrufræðinnar, er okkur varðar mest, svo sem
eldfjallafræði, jarðskjálftafræði, haffræði og jöklafræði. En að engum
virtist hvarfla, að ástæða væri til, að íslenzkir vísindamenn mættu
á því móti. Er þó ekki víst, að þeir hefðu staðið sig þar nokkru ver
en okkar ágætu íþróttamenn, og eflaust hefðu þeir getað lært þar
ýmislegt, sem hefði getað orðið rannsóknum hérlendis að gagni. Islend-
ingar eru nú næstum eina þjóðin, sem ekki er aðili að þessum alþjóða-
félagsskap, og virðist þó sem Island ætti heima í þeim félagsskap
flestum þjóðum fremur, enda hefur þess oftar en einu sinni verið
æskt af þessu alþjóðasambandi, að ísland gerðist þar aðili. Raunar
kostar þetta 100 ensk pund árlega, en ekki er það neinn obbi. Næsta
alþjóðaþing jarðeðlisfræðinga verður haldið í Róm haustið 1954. Yæri
mjög æskilegt, að Island gerðist aðili að samhandinu fyrir þann tíma,
svo að íslenzkir vísindamenn verði þar ekki lengur utan gátta.
F}rrir nokkrum árum var það samþykkt á alþjóðaráðstefnu um
póstmál, að visindastofnanir mættu senda vísindaritgerðir milli landa
fyrir mun lægra burðargjald en annað prentmál. Veit ég ekki betur
en að íslenzkir póstmálapótintátar hafi mætt á þessari ráðstefnu án
þess að andmæla þessari samþykkt. En svo undarlega bregður við, að
íslenzka póststjórnin, ein allra póststjórna, hefur látið undir höfuð
leggjast að fylgja þessari samþykkt. Sýnir það litla art í garð íslenzkra
vísinda. Svo mikð er þó ekki skrifað af vísindaritum hér, miðað við
önnur lönd, að þetta ætti að verða íslenzku póststofnuninni erfiðari
baggi en öðrum. Hins vegar væri þessi alþjóðasamþykkt, ef framfylgt
væri, dálítill fjárhagslegur léttir þeim visindastofnunum, sem hér
starfa. Þess má geta, að ekki er útgefinn sá pólitíski blaðsnepill hér-
lendis, að ekki þyki sjálfsagt, að hann sé út sendur með afsláttum
á burðargjaldi.
Svo er nú það.
S. Þ.