Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 8

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 8
2 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Ijósið að orkugjafa, jafnvel þar sem sjórinn er mjög djúpur. Það sjá- um við, ef við drögum fínan háf vissa vegalengd í sjónum góðviðr- isdag í maí, förum síðan með innihaldið úr háfnum heim og bregð- um því undir smásjána. Birtist okkur þá aragrúi af örsmáum, skringilegum lífverum, gulbrúnum eða rauðbrúnum að lit. Vegna smæðar sinnar og lögunar geta þær haldist í yfirborðslögunum um tíma og notað sólarljósið. Það eru þessar smásæju lífverur, plöntn- svifið, sem í raun og veru eru undirstaða lífsins í sjónum, og munu þær verða gerðar að umtalsefni í þessari grein. Plöntusvif eða fytoplankton kallast plöntur þær, sem hafast við í sjávaryfirborðinu og eru án sjálfstæðrar hreyfingar eða hreyfast mjög lítið miðað við sjóinn. Þær tilheyra hinum mismunandi flokk- um þörunganna. Þýðingarmestu flokka plöntusvifsins má telja kísilþörunga (Diatomeae), skoruþörunga, (.Dinofla- gellatae) og kalkþörunga (Coccolithineae). Blágrænþör- u n g a (Cyanophyceae) og grænþörunga (Chlorophyceae) gætir einnig í plöntusvifi sjávarins. Hver einstaklingur er ein fruma, aðeins brot úr millimetra að stærð, og vinnur hún öll þau störf, sem hjá æðri plöntum á landi er skipt á milli vefja, rótar, stönguls og blaðs. Æxlunin fer aðallega fram við það, að hver fruma skiptir sér til helminga. Hjá sumum tegundum getur skiptingin farið fram tvisvar á sólarhring, ef skilyrði eru góð, svo að frá einni frumu geta á nokkrum dögum komið fjölda margir einstaklingar. Þetta má skýra með dæmi: Ef 10 frumur í einum lítra af sjó fara að skipta sér og gera það óhindrað í átta og hálfan dag, þá er fjöldi þeirra í einum lítra orðin ein milljón. Það er alls ekki óvenjulegt fyrir- bæri á vorin, þegar skilyrðin til gróðurs eru góð, að tala einstakling- anna í einum lítra af sjó skipti milljónum. En þróunarferill þess- ara örsmáu lífvera eru stuttur og hver tegund er aðeins skamman tíma í yfirborðslögunum hverju sinni. Tegundir, sem lifa yfir land- grunni, mynda venjulega dvalagró, er falla til botns og liggja þar lengri eða skemmri tíma. Er það síðan háð hreyfingum sjávarins og gróðurskilyrðum í yfirborðslögunum á hverjum stað, hvenær teg- undin verður aftur virkur þátttakandi í framleiðslu plöntusvifsins. í tempruðum og arktískum sjó eru kísilþörungarnir meðal veiga- mestu framleiðenda sjávarins af lífrænum efnum. Mynd 1 sýnir nokkrar tegundir kísilþörunga. Frumurnar eru oft lauslega festar

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.