Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 22
16
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
DÝPI
]. mynd. Eðlisþyngd efnisins 1 íðrum jarðar.
Hraðar jarðskjálftabylgjanna í svæði D eru vel ákvarðaðir, og
rannsóknir Birch benda til, að efnasamsetning sé næstum sú sama
í öllu svæðinu. í D2 virðist stigull eðlisþyngdarinnar fara vax-
andi með dýpt, sem bent gæti til þess, að safnast hefði fyrir meira
af þungu efni í neðstu 200 km möttulsins.
Möttullinn er allur úr föstu efni (að fráskildum höfum og ein-
angruðum hólfum af bráðnu bergi). Þetta sannast á því, að S-bylgj-
ur berast um allan möttulinn, engu síður en P-bylgjur.
Svæðin E, F og G eru það sem nefnt er kjarni (core) jarðarinnar.
Mörkin milli D2 og E eru greinileg. Árið 1913 reiknaði Guthenberg
dýptina að þeim, frá yfirborði jarðar, og reyndist hún vera 2900