Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 17

Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 17
UM PLÖNTUSVIFIÐ í SJÓNUM 11 sjónum af ólífrænum efnum, hve mikið er af svifi og svo framvegis. Á vissu dýpi er birtan svo lítil, að plönturnar geta ekki byggt meira af lífrænu efni, eu þær eyða jafnóðum við öndunina. Þetta dýpi, þar sem jafnvægi er á milli þess, sem plantan byggir upp, og þess sem hún eyðir jafnóðum, hefur verið kallað jafnvægisdýpið, og liggur það mjög misjafnlega djúpt, jafnvel á sömu breiddargráðu á sama tíma árs. Við vesturströnd Skotlands hefur jafnvægisdýpið reynst vera á um það bil 30 m að sumri til, og á 60° n. br. í Noregs- hafinu á 50 m. Lítið er kunnugt hvar jafnvægisdýpið liggur við strendur íslands. Það eina, sem gert liefur verið af slíkum rann- sóknum hér við land var framkvæmt af Dananum Steemann Niel- sen. Samkvæmt mælingum hans reyndist jafnvægisdýpið í maí í Faxaflóa, rétt fyrir utan Keflavík, vera um það bil á 9 m. En ætla má, að þetta dýpi sé mjög breytilegt yfir íslenzka landgrunninu eftir því, á hvaða stað það er mælt. Af því, sem sagt hefur verið um ljósið, er sýnilegt, að hin raun- verulega framleiðsla af lífrænu efni fer fram í tiltölulega rnjög þunnu sjávarlagi. Þegar bóndinn vill bæta uppskeruna, bætir hann jarðveginn fyrst og fremst með kalí, fosfór og köfnunarefni, þar eð þessi efni eru af skornum skammti í jarðveginum, en alveg nauðsynleg plöntun- um í uppbyggingarstarfi þeirra. Þessi sömu efni eru jafn nauðsyn- leg plöntunum í sjónum. Það er gnægð af uppleystum kalísöltum í sjónum, svo að plöntur hafsins skortir þau aldrei. Aftur á móti er tiltölulega lítið af köfnunarefnis- og fosfórsamböndum í yfir- borðslögunum, og það sem fyrir hendi er hverju sinni, eyðist fljót- lega við starfsemi plantnanna, svo að á vissum tímum árs verður alger þurrð. Má segja, að mælikvarði á það, hve mikil plöntufram- leiðsla geti orðið á hverjum stað, sé magn það af fosfötum og nitrötum, sem berst til hafsvæðisins. Hringrás þessarra efna í sjón- um hefur því mikla þýðingu fyrir útbreiðslu plöntusvifsins og magn þess á hverjum stað, og skulum við því athuga það samhengi nokkru nánar. Það er algengast hér í Norðurhöfum, að fosföt og nítröt berist til yfirborðslaganna með hinum lóðréttu straumum, sem orsakast af vetrarkólnuninni. Á vetrum, þegar yfirborðslögin kólna, verða þau þyngri en lögin undir og sökkva, en upp kemur hlýrri sjór. Við þetta myndast lóðréttir straumar, sem smám saman ná

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.