Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1957, Blaðsíða 50

Náttúrufræðingurinn - 1957, Blaðsíða 50
42 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN sumpart í fylgd með íslenzkum jarðfræðingum, einkum með Jóhannesi Ás- kelssyni. Hann hefur einkum lagt stund á sögu loftslagsbreytinga og rann- sakað hér í því skyni surtarbrandslög og hefur hann, ásamt samstarfsmönn- um sínum í sínu heimalandi sent frá sér nokkrar ritgerðir um loftslagssögu landsins og mun von á fleirum. Sjálfur hefur liann skrifað greinargott yfirlit um rannsóknir annarra vísindamanna, einkum íslenzkra, á þessu sviði. Hann hefur og skrifað um Grábrók í Norðurárdal og umhverfi hennar. Nú hefur Schwarzbach sent frá sér litla bók, Geologenfahrten in Island, eða Ferðalög jarðfræðings um ísland. Þetta er mjög snotur bók, hið ytra sem hið innra, prentuð á ágætan pappír og prýdd mörgum góðum myndum, flest- um teknum af höf. sjálfum, en hann er góður ljósmyndari og teiknari með ágætum. Aðaltilgangur bókarinnar virðist vera sá að sýna fram á hvílíkt Dorado ísland er fyrir jarðfræðinga. Segir höf. í formála, að gæti hann komið því við, myndi hann láta nemendur sína læra af íslandi helming almennu jarðfræð- innar. Schwarzbach kemur víða við í bók sinni, en tíðræddast verður honum um surtarbrandinn og íslenzkar eldstöðvar. Hann segir m. a. frá ferð til Brjáns- lækjar í fylgd með Jóhannesi Áskelssyni og ferðalagi um Fjallabaksveg, er hann fór með Guðmundi Jónassyni, ásamt undirrituðum. Bókin er að mínum dómi betur skrifuð en flest það, sem Þjóðverjar hafa skrifað um ísland, laus við mælgi og fjálg stóryrði, stíllinn léttur og kryddaður góðlátum liúmor. Ég komst í gott skap þegar við lestur formálans. Höf. er og samvizkusamur um heim- ildir, stingur hvergi undir stól rannsóknum íslendinga og tranar sér eigi fram í frásögninni, svo sem oft vill verða í bókum af þessu tagi. Villur þær, sem ég hef rekizt á í bókinni, eru smávægilegar og skipta ekki miklu máli. Hann fer og tiltölulega rétt með örnefni, en út af bregður þó (Hverfall, Nordary Ófæra). Það má mikið vera ef þetta litla, snotra rit á ekki eftir að lokka marga þýzku- mælandi jarðfræðinga til íslands. Sigurður Þórarinsson. MARTIN SCHWARZBACH: Beitrdge zur Klimageschichte Islands I. Allge- meiner Úberblick der Klimageschichte Islands. Neues Jb. Geol. Palaontol., Mh. 1955: 97—130. 20 myndir. Stuttgart 1955. Þessi ritgerð er hin fyrsta í röð ritgerða, sem fjalla eiga um rannsóknir á loftslagssögu íslands. Eru hér samandregnar niðurstöðurnar af því, sem fram til þessa hefur verið ritað um þetta efni. Vitnar höf. í 92 ritgerðir og eru 40 þeirra eftir íslenzka vísindamenn. Höf. lýsir fyrst stuttlega nútíma loftslagi á íslandi, rekur síðan loftslagssöguna eins og liún hefur verið lesin úr surtar- brandslögum, Tjörneslögum og ísaldarlögum svo sem Búlandshöfðalögunum og lögunum í Bakkakotsbrúnum. Að endingu rekur hann postglacíölu lofts- lagssöguna, sem enn er langt frá því nægilega rannsökuð, og loftslagsbreytingar síðustu alda, sem mega nú heita sómasamlega rannsakaðar. Yfirleitt gerir Schwarzbach grein fyrir niðurstöðum þeirra höfunda, sem liann vitnar í, án þess að taka afstöðu til þeirra. Hann fellst á þá skoðun Dr. Helga Pjeturss, að skeljalögin í Fossvogi séu interglacial. Má vel vera að svo sé, en þó lield ég að þetta þurfi að rannsaka nánar. M. a. þyrfti að rekja útbreiðslu skelja þeirra,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.