Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1957, Blaðsíða 51

Náttúrufræðingurinn - 1957, Blaðsíða 51
RITFREGNIR 43 sem komið liala upp við gröft gegnum deigulmó hér og þar á Háskólalóðinni, en þær skeljar eru sömu tegunda og í Fossvogi. Fossvogslögin virðast þó nokkru harðari. Schwarzbach birtir ljósmynd, sem hann liefur tekið af óvenju fallegum livarffeirsfögum uppi við Kerlingarfjöll. Munu þar vera samanlagt yfir 600 hvörf. Sú athugun lians að litaskipti hvarfanna séu öfug við það, sem gerist í Skandinavíu, er ekki ný. Guðmundur Kjartansson hefur fyrir löngu vakið athygli á þessu í ritgerð sinni um Skáldabúðalón. í heild er þetta yfirlit Schwarzbachs greinargott og ágæt lesning fyrir þá, sem vilja með lílilli fyrirhöfn kynnast því, sem vitað er um loftslagsbreytingar hér á landi. Sigurður Þórarinsson. MARTIN SCHWARZBACH: Beilráge zur Klimageschichte Islands IV. Das Vul- kangebiet von Hredavatn. N. Jahrb. Geol u. Paláontol. Abh. 104: 1—29. 17 myndir í texta og 2 myndasíður. Stuttgart 1956. Þótt ritgerð þessi sé birt I flokki þeirra, sem fjalla eiga um loftslagssögu íslands, er liún aðeins að litlu leyti um það eíni. Meiri hluti hennar fjallar um landið kringum Hreðavatn, einkum um gígana Grábrók og Grábrókarfell (sem ég vil kalla Rauðbrók, en litla gíginn austan í Grábrók vil ég kalla Smábrók), og hraun frá þeim. Höf. dvaldi nokkrar vikur á Hreðavatni sumarið 1955 og liugðist einkum rannnsaka tertíeru jurtaleyfarnar, sem þar er að finna. Dr. H. D. Pflug lxefur frjógreint sýnishorn úr jurtalögunum og telja þeir Schwarz- bach flóruna svipaðs aldurs og hjá Tröllatungu í Steingrímsfirði, frá því snemma á Tertíertímabilinu. En Schwarzbacli varði miklum hluta tíma síns á Hreðavatni til að athuga landið þar í kring, einkum eldstöðvar, sem fyrr getur, og lýsir hann þessu öllu skilmerkilega og birtir kort af, sem byggt er á flugmyndum, svo og góðar teikningar og ljósmyndir. Gerð hefur verið C14 aldursákvörðun á jarðvegslagi, sem virðist ganga inn undir Rauðbrókarhraun, og reyndist aldurinn 3700± 120 ár. Líklegt er að aldur liraunsins sé talsvert minni. Höf. telur líklegt, að bergskriðan stóra úr Hraunsnefsöxl sé yngri en Grábrókarhraun. Sigurður Þórarinsson. F. A. HENSON: The Geology of Iceland. University of Nottingham. Survey. Vol. 5, No. 3. July 1955, bls. 34-46. Dr. F. A. Hensen, sem er bergfræðingur, tók þátt í leiðangri, sem stúdentar frá Nottingham háskóla gerðu út til Öræfa sumarið 1953 undir stjórn Jack Ives. Ofannefnd grein er yfirlitsgrein um jarðfræði íslands, mjög jtokkalega skrifuð og lítið um villur. Höf víkur sérstaklega að svæðinu kringum Morsár- dal og telur móbergið á þeim slóðum örugglega kvartert. Einn granftmola fann hann þar á sandinum, en granítmoli hefur einu sinni áður fundizt þar og hann verið rannsakaður af próf. Arne Noe-Nygaard í Kaupmannahöfn. Henson mun væntanlega birta síðar sérstaka ritgerð um berggrunn Morsár-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.