Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 60
'■—»»—«»—»»—■»—»»—»■—■■—■»—«»—■«—■»—«»■—■«—■»—■■—""—«»—«■—■■—n"—■■—u"—«"—"•b
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutfélagsins Eimskipafélag íslands, verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar-
daginn 1. júní 1957 og hefst kl. 1.30 e. h.
D A G S K R Á :
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfir-
standandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur
íram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga
til 31. des. 1956 og efnahagsreikning með athuga-
semdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og
og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt-
ingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna i stjórn félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum félags-
ins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumaðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 27.-29. maí næstkomandi. Menn geta fengið eyðu-
blöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu
félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og aftur-
kallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hend-
ur til skrásetningar, ef unnt er, 10 dögum fyrir fundinn, ]). e.
eigi síðar en 19. maí 1957.
Reykjavík, 8. janúar 1957.
STJÓRNIN.