Náttúrufræðingurinn - 1969, Page 26
20
NÁTTÚRU I- RÆÐINGURINN
A40
1. mynd. Hlutfallslegar hafiiænutölur (oceaniskt index) á ýmsum
veðurstöðvum landsins.
dt, þ. e. hitastig milli 0° og 10°. Á mörgum hinna ísienzku veður-
stöðva fer meðalhiti hlýjasta mánaðarins nefnilega ekki yfir 10°,
og þar reiknast því allt sumarið inn í þessa stærð. Verður því
stærðin K hlutfallslega aiít of stór á stöðum með lágu iiitastigi.
Eg hef því leyft mér að gera þá iagfæringu á formúlunni, að
iáta dt tákna árlegan dagafjölda með hitastigi milli 0° og 5°, og
finnst mér það komast næst hinni upprunalegu hugmynd Koti-
lainens, sem kemur m. a. fram í naíngift Iians á stærðinni, þ. e.
vor- og haustdagafjöldi.
Þannig umbreytt hefur formúlan reynzt allvel nothæf til að
tákna loftslagsmismuninn hér á iandi. Hef ég reiknað út hlutfalls-
tölur fyrir allar helztu veðurstöðvar landsins, og eru þær mark-
aðar á meðfylgjandi kort (1. mynd).
Eins og sjá má, eru tölur þessar alimismunandi, eða frá um 20
í innsveitum á Norðausturlandi til um 440 í Vík í Mýrdal. Að
öðru ieyti virðast þær vera í ailgóðu samræmi við áður umrædd
loftslagshlutföll landsins.