Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 38

Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 38
32 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Sturla Friðriksson og Haraldur Sigurðsson: Snjótittlingar hugsanlegir frædreifendur Dýralíf og gróður margra úthafseyja lilýtur að verulegu leyti að vera aðfluttur. Sérstaklega á þetta við eyjar, sem risið liafa úr sæ eða komið hal'a undan jöklum, en gagnstætt þessu hafa sumar eyjar myndazt við að slitna úr tengslum við stærra meginland og ber gróður og dýralíf þeirra eðlilega keim af h'fverum megin- landsins. Ekki eru menn á eitt sáttir um, að hve miklu leyti fuglar stuðla að dreifingu smærri dýra og jurta milli landa, en allt frá tímum Darwins hefur viðfangsefni þetta orðið til umhugsunar. Þó hafa verið nokkur vandkvæði á því að sanna fjarflutning lífvera með fuglum. Við tilkomu Surtseyjar var fengin sérlega góð aðstaða til þess að kanna þátt fugla í flutningi lífvera milli landa yfir út- hafsála. Þar sem Surtsey er syðsta eyjan við strendur landsins, þótti sýnt, að hún myndi einnig vera fyrsti lendingarstaður fyrir ýmsa far- fugla, sem koma af flugi frá suðlægari Evrópulöndum. Þar sem eyjan hefur fram að þessu mátt teljast nærri gjörsneydd öllu lífi, myndu vera litlar líkur fyrir því, að slíkir aðkomufuglar gætu aflað sér nokkurrar teljandi lífrænnar fæðu á eynni. Ef lifandi fræ eða smádýr fyndust í eða á farfuglum, sem veiddir væru við lend- ingu þeirra á Surtsey snemma vors, væru miklar líkur fyrir því, að slíkar lífverur hefðu raunverulega borizt með fuglunum yfir hafið. Af þessum ástæðum voru nokkrir áhugamenn um fuglaskoðun fengnir til þess að huga að fuglum í Surtsey dagana 31. marz til 12. maí 1967 og safna ýmsum tegundum farfugla, sem þangað kæmu.1) 1) Þann þátt rannsóknarinnar, sem snýr að komu larfuglanna til Surts- eyjar, hefur dr. Finnur Guðmundsson séð um.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.