Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 47

Náttúrufræðingurinn - 1969, Qupperneq 47
NÁTT Ú RUFRÆÐINGURJNN 41 Ingólfur Daviðsson: Gróðurrannsóknir sumarið 1968 I. Leitað að furtaslæðingum. A. / Eskifjarðarkaupstað 21. ágúst. Skógarkerfill (Anthriscus silvestris) vex hér og hvar, bæði í görð- um og utan þeirra. Geitakál (Aegopoduim Podagraria) vex innan- um gras í görðum nppi á brekkunni. Einnig í garði við fjarðarbotn- inn og í kirkjugarðinum. Freyjubrá (Grysanthemum leucanthem- um) og sigurskúiur vaxa einnig í kirkjugarðinum. Arfanæpa (Bras- sica campestris) og hélunjóli sjást í kartöflugörðum. Háliðagras og vallarfoxgras í nýrækt. Húsapuntur, skriðsóley og græðisúra sjást hér og hvar, en hvergi mikið. B. / Ólafsfjarðarkauptúni 15. september. í gömlum, afræktum kartöflugarði, Jrar sem hænsnum hafði verið gefið, uxu: Stórvaxin lóblaðka (Polygonum tomentosum), króka- maðra (Galium aparine), bókhveiti, vafsúra, hélunjóli, arfanæpa og arfamustarður. Aðrir slæðingar í kaupstaðnum voru: Akurarfi, Ijósa- tvitönn, silfurhnappur, háliðagras, vallarfoxgras og sigurskúfur. Húsapuntur og skriðsóley allvíða. Kattarjurt hér og hvar, t. d. við veg skammt frá Brimnesi. C. / Þorlákshöfn 26. september. Gulbrá og krossfíf’ill hér og hvar. Vallarfoxgras við götur og tún. Mikill húsapuntur. Talsvert um baldursbrá og njóla. í allstórri græðu, þar sent úrgangi hafði verið fleygt, efst í fjörunni og í bakk- anum, skammt frá höfninni, uxu: Stórvaxin lóhlaðka (P. tomen- tosum), vafsúra, bókhveiti, hélunjóli, arfanæpa, ltrókamaðra (G. aparine), liveiti, hafrar og bygg, bæði sexraða og tvíraða.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.