Náttúrufræðingurinn - 1969, Síða 53
NÁTT Ú RUFRÆÐl NGURINN
47
þurrkun nrýrlendis allmiklu ofar og framræslu vegna vegagerðar.
Varpasveifgras vex við gamlar fjárgötur og þar sem kvíaær gengu
upp á Flesjum uppi á Hámundarstaðahlíð í um 600 m hæð yfir
sjó, en er smávaxið. Hve hátt yfir sjó hefur það fundizt í blómi?
Bláklukkan breiðist út um landið.
Bláklukka (Campanula rotundifolia) er algeng í margs konar
gróðurlendi á austanverðu landinu, frá Jökulsá í Axarfirði að Mýr-
dalssandi. En fundin er hún á allmörgum stöðum utan þessa svæðis,
en víðast aðeins á smáblettum, nokkrar jurtir í stað — og virðist
oft deyja út aftur, eða er e. t. v. rifin upp af mönnum, enda er
þetta fögur jurt og sérkennileg með hinum fagurbláu klukkublóm-
um, sem hanga niður eitt eða fleiri á hverjum stöngli. Bláklukka
er allvíða ræktuð til skrauts í görðum og einnig á síðari árum
gróðursett í friðuð svœði, t. d. trjálundi. Hún berst og alloft með
jurtum og hríslum, sem fluttar eru til gróðursetningar. Má búast
við að hún breiðist talsvert út af þessum sökum. — Við Eyjafjörð
ltefur hún fundizt á nokkrum stöðum, t. d. ofan við Eyrarland og
í Klaufabrekkum í Svarfaðardal og víðar. Við Hörgárbrú óx lnin
nokkur ár, en mun horfin þaðan.