Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 6. júní 2009 13 Nú er grilltíminn og ekkert slegið af því þótt það sé kreppa. Flestir eru komnir með gaskúta við grillin sín og þeim þarf að skipta út reglulega. Hvað skyldi það nú kosta? Til að kanna hver býður best er ekkert annað að gera en að hringja á þá staði sem bjóða upp á áfyllingar. Ég spurði hvað það kostaði að skila tómum 10 kílóa gaskúti inn og fá annan fullan í staðinn. Niðurstöðurnar eru eftirfarandi: Byko – 3.400 kr. Olís – 4.660 kr. N1 – 4.662 kr. Shell – 4.959 kr. Neytendur: Hvað kostar gasið? Byko býður best JAKARTA, AP Vísindamenn hafa við rannsóknir á eðli flóðbylgja upp- götvað risavaxið neðansjávareld- fjall undan vesturströnd Indón- esíu. Fjallið er um 4.600 metrar á hæð og fimmtíu kílómetrar að þvermáli. „Þetta var algjörlega óvænt,“ sagði einn vísindamann- anna í gær. Ekki er vitað hvort eldfjallið er virkt, en vísindamaðurinn sagði að ef svo væri og það gysi væri það „mjög, mjög hættulegt“. Fjallið er um 330 kílómetra vestur af eynni Súmötru og tind- ur þess er um 1.380 metra undir yfirborði sjávar. - sh Vísindamenn hissa: Fundu óvænt risastórt eldfjall HÁTÍÐAHÖLD Gervigraslagður sparkvöllur við Öldugötu í Reykjavík, við hlið gamla Stýri- mannaskólaskólans og síðar Vest- urbæjarskólans, verður vígð- ur klukkan tólf á hádegi í dag. Vígsla hins endurbyggða „Stýró“, eins og svæðið var lengi kallað, helst í hendur við hátíðarhöld vegna 110 ára afmælis KR. Hátíðin hefst klukkan 13.30 með skrúðgöngu frá Melaskóla að KR-svæðinu. Hjá KR-heimilinu verða leiktæki, grill og veiting- ar seldar. Einnig verður gestum boðið upp á kynslóðaleik í knattspyrnu. Þar munu lið skipuð landsliðs- mönnum og Íslands- og bikar- meisturum KR í gegnum tíðina takast á. - kg 110 ára afmælishátíð KR: Endurbyggður „Stýró“ vígður BRETLAND, AP Fangelsismálayfir- völd í Bretlandi hafa viðurkennt að hafa gert mistök sem áttu hlut í því að tveir franskir námsmenn voru myrtir á hrottalegan hátt í London í fyrra. Annar morð- ingjanna var á skilorði og átti að vera undir miklu eftirliti. Tveir breskir menn voru í gær fundnir sekir um morðin hrottalegu. Gabriel Ferez og Laurent Bonomo fundust látnir í íbúð sinni í London fyrir um ári. Þeir höfðu verið bundnir og pyntaðir og stungnir 244 sinnum. Morð- ingjarnir tveir höfðu upphaflega ætlað að ræna mennina. - þeb Morð á frönskum stúdentum: Fangelsisyfirvöld gerðu mistök BLAÐAMANNAFUNDUR Guy Bonomo,, faðir annars franska námsmannsins sem myrtur var í Bretlandi í fyrra, ræðir við fjölmiðla eftir að dómur var upp kveðinn í gær. FRÆETTABLAÐIÐ/AP ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is FÉLAGSMÁL Íslensk ættleiðing og Foreldrafélag ættleiddra barna hafa lagt til við dómsmálaráð- herra að aldurshámark verði fellt úr reglugerð um ættleið- ingar og miðað verði við aldurs- hámark upprunaríkisins, segir í nýju fréttariti Íslenskrar ættleið- ingar. Eins og staðan er í dag eru tugir íslenskra hjóna sem vilja ættleiða barn að falla á tíma vegna inn- lends aldurshámarks. Núverandi hámark er 45 ár, en er í flestum löndum hærra. Nokkur ár getur tekið að bíða eftir að ættleiðing barns gangi í gegn og ef það ger- ist ekki fyrir 45 ára aldur missa hjónin möguleikann á ættleið- ingu. Ísland er þekkt fyrir góðar lífs- líkur og háan meðalaldur og því ætti aldur ekki að vera svo mikil fyrirstaða, segir í ritinu. „Með nýjum ráðherra skynjum við aukinn áhuga í dómsmálaráðu- neytinu á ættleiðingarmálum. Við bindum því miklar vonir við að á þeim bæ verði skilningur á vanda þeirra sem eru að missa möguleika sína vegna þröngra aldursmarka á Íslandi,“ segir í ritinu. - hds Íslensk ættleiðing: Tugir hjóna að falla á tíma BÖRN Reynt er að bregðast við vanda- málinu svo bið margra hjóna verði ekki að engu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.