Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 76
6. júní 2009 LAUGARDAGUR
Sögustund.is, heimasíða sem
inniheldur lesið barnaefni, verð-
ur formlega tekin í notkun í dag.
Heimasíðan er hugarfóstur leik-
konunnar Kristjönu Skúladóttur og
mun allur ágóði hennar fyrstu tvo
mánuðina renna óskiptur til SOS-
barnaþorpanna á Íslandi. „Ég hef
gengið með þessa hugmynd nokkuð
lengi og hún hefur svo með tíman-
um þróast í þessa átt. Eiginmaður
minn sá um uppsetningu vefjarins,
en ég safnaði saman sögunum og
las inn, þetta er því hálfgert fjöl-
skyldufyrirtæki,“ segir Kristjana
um tilurðina. Á síðunni er meðal
annars að finna gömul íslensk
ævintýri í bland við Grimms-ævin-
týri auk annarra perlna og líkt og
áður hefur komið fram mun allur
ágóði af sögunum renna óskipt-
ur til SOS-barnaþorpanna. „Mér
finnst hugmyndin að baki SOS-
barnaþorpunum vera stórkostleg
og mig langaði að leggja þeim lið.
Þetta er brýnt málefni og þó að
kreppi að hérna núna þá megum
við ekki gleyma öðrum á meðan,“
segir Kristjana og tekur fram að
von er á fleiri sögum inn á vefinn
í framtíðinni. „Þetta er bara byrj-
unin, síðan mun vaxa og dafna í
framtíðinni.“
Vefsíðan opnar í dag á afmælis-
degi SOS-barnaþorpanna og verð-
ur afmælishóf haldið í Ráðhúsi
Reykjavíkur í tilefni dagsins. „Ég
vona að undirtektirnar verði góðar
því við viljum reyna að styrkja
SOS eins og við mögulega getum,“
segir Kristjana að lokum. - sm
Perlur og ævintýri
KRISTJANA SKÚLADÓTTIR opnar síðuna
sögustund.is í tilefni afmælis SOS-
barnaþorpanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Notaðar konur, eða Sec-
ondhand Women, standa
fyrir sýningunni Money
Transformance í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu um helg-
ina. Í hópnum eru Stefanía
Thors frá Íslandi, Helena
Kvint frá Danmörku, og
Daniela Voráckova, Halka
Trešnaková og Petra
Lust igová frá Tékklandi.
Sýningin er óhefðbundin og fjallar
um peninga í sínum ýmsu myndum.
„Svo gerum við líka grín að þessu.
Frændi minn er Björgólfur Thor,“
segir Stefanía. Hún segir sýning-
una fulla af húmor og byggja á per-
sónulegri reynslu. Verkið er flutt á
íslensku og ensku. Sýningin bregð-
ur upp mynd af mismun þeirra sem
eru uppaldir í vestrinu og þeirra í
austri.Sýningin er leikin á íslensku
og ensku.
„Við ákváðum að gera þessa sýn-
ingu um peninga fyrir um tveim-
ur árum. Svo skall kreppan á og þá
fengum við enn frekari ástæðu til.
Vinkona mín í Danmörku missti
allan sparnaðinn sinn og ég missti
líka pening,“ segir Stefanía. „Þær
okkar frá Tékklandi áttu engan
sparnað til að tala um. Þær eru ekk-
ert að tapa á þessari kreppu, heldur
er alltaf kreppa í Tékklandi. Þær
eru ekki búnar að missa vinnuna,
þær hafa aldrei verið ráðnar.“
Hópurinn, sem á bækistöðvar í
Tékklandi, er fyrsti leikkvennahóp-
urinn þar eftir byltingu. Þær eru
í fyrsta skipti á Íslandi, en halda
héðan til Danmerkur og Svíþjóðar.
- kbs
Notaðar konur
SJÁLFSGAGNRÝNAR Leikhópurinn Notaðar konur er ekki hræddur við að gera grín að
sjálfum sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Norrænt bókband 2009
Ný sýning í bókasal Þjóðmenningarhússins.
Hér sýna 89 norrænir bókbindarar verk sín. Allir bundu þeir sömu bókina, Norðanvind,
hver á sinn hátt. Í bókinni eru ljóð eftir 18 norræn skáld og grafískar teikningar eftir
íslenska listamenn.
Sýningin er opin alla daga kl. 11 – 17. Henni lýkur 7. ágúst nk.
The Culture House – Þjóðmenningarhúsið
National Centre for Cultural Heritage
Hverfi sgata 15 · 101 Reykjavík (City Centre)
Tel: 545 1400 · www.thjodmenning.is
Opið daglega
kl. 11.00 – 17.00
Open daily between
11 am and 5 pm.
Leiðalýsing
og skemmtun
um landið
í sumar
Handhægar bækur í ferðalag-
ið um Ísland sem opna þér
nýja áfangastaði og leiðir í
alfaraleið og um óbyggðir.
Og ekki sakar að bæta við
leikjabókinni 10x10 leikir.
3.990 kr.
3.990 kr.
3.490 kr.
3.690 kr.
1.790 kr.
10x10 leikir
Íslensk fjöll
101 Ísland
Kortabók
Ferðahandbók fjölskyldunnar