Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 06.06.2009, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 6. júní 2009 HVAMMSVÍK Fjölskyldufjör í Hvammsvík! Frístundasvæðið í Hvammsvík opnar að nýju 11. júní og hefur það aldrei verið ævintýralegra. Hvammsvík er aðeins steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu og þar getur öll fjölskyldan átt unaðslegar stundir saman – og öllum finnst gaman! Nánari upplýsingar í síma 566 7023 og á www.hvammsvik.is Þúsundum silunga hefur verið sleppt í vatnið og frábær veiðivon fyrir stóra sem smáa, reynda sem byrjendur. Silungsveiði Taktu tjaldið með þegar þú mætir í Hvammsvík. Þar er fyrirtaks tjaldstæði, grillaðstaðan alveg glimrandi fín og umhverfið undurfagurt. Tjaldstæði með frábærri aðstöðu Golfvöllurinn er nú í umsjón GR og hefur verið endurbættur. Völlurinn er alveg passlega stór fyrir alla fjölskylduna. Golf F Í T O N / S Í A aðilar verða aldrei of gagnrýndir fyrir þær sakir. Í öðru lagi er alls ekki saman að jafna því sem nú er að gerast og því sem var að gerast þá. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn segir í þinginu að verið sé að fresta ákvörðunum, þá er það mikill mis- skilningur. Það er verið að hverfa frá stjórnarháttum Sjálfstæðis- flokksins, sem skiluðu engu. Við erum farin að skila árangri. Eftir því sem ég hlusta meira á Sjálf- stæðisflokkinn í þinginu held ég að hvíld hans þurfi að vera löng. Slík er veruleikafirringin. Að heyra fólk sem er ábyrgt fyrir þessari spill- ingu og valdboði, sem leiddi okkur út í fenið, að það skuli tala eins og það gerir! En þú spyrð um Geir Haarde. Hann er ekki Sjálfstæðis- flokkurinn. Við erum að fara út úr tilskip- unarþjóðfélaginu og inn í gagnsæi og opin skoðanaskipti. Ég vona að okkur beri gæfa til að starfa í þeim anda. Þegar kreppan kom sögðum við að allir ættu að koma að málum. Í öllum veigamiklum málum sem snerta þjóðarhag, í frágangi Ice- save-skuldbindinga og annarra stórra mála sem koma til með að hvíla á okkur öllum um ókomin ár, þá á að leita eftir samstarfi allra, sama á við um ESB. Það á ekki að vera einkamál ríkisstjórnarinnar sem situr á hverju augnabliki. Við eigum að virkja sem flesta. Evrópusambandið Talandi um ESB. Nær öll launþega- og hagsmunasamtök hafa tekið afstöðu til ESB. Hvers vegna hefur þetta ekki verið gert í formennsku- tíð þinni í BSRB? BSRB tók þá afstöðu að reyna að varpa ljósi á þetta mál, vitandi að samfélagið er allt klofið í þessu og það á við um BSRB líka. Ég hygg að Bændasamtökin og útvegsmenn séu heildstæðust í andstöðu sinni, en öll önnur samtök eru klofin. Við sögð- um sem svo í BSRB að við gætum ekki leyft okkur í svona máli að taka aðra afstöðu um málið en að efna til umræðu um það. Og það höfum við sannarlega gert. En ekki komist að neinni niður- stöðu? Niðurstaðan er sú að við viljum lýðræðislega aðkomu að málinu og að hver og einn geti talað í eigin nafni. Ég er til dæmis eindreg- inn stuðningsmaður þess að þjóð- in fái málið til umsagnar, en hef ekki farið í launkofa með það að ég tel hagsmunum Íslands ekki best borgið innan ESB, alls ekki. Og það renna á mig tvær grímur í ríkari mæli en áður þegar ég verð vitni að því hvernig þessar þjóðir hafa beitt okkur ofríki í Icesave-deilunni. Evrópusambandsríkin hefðu þó varla gert það við Evrópusam- bandsríki? Það er ekki alveg rétt. Sjáðu hvernig ESB er að fara með Letta. Það er ljótur leikur. Taktu Írland, sem er að lenda í geysilegri kreppu. Er verið að hjálpa þeim eitthvað sérstaklega? Eða Bretum? En það er ekki heldur verið að setja hryðjuverkalög á Íra eða kúga þá … Nei, en það er annað sem ræður. Þegar Lehman Brothers fóru á hausinn voru milljarðar dollara færðir frá London til Washington, þúsundir misstu vinnu sína í Lond- on og þetta olli geysilegu tjóni í bresku efnahagslífi. Það voru engin hryðjuverkalög sett á Amer- íkanana. Við vorum litli gæinn sem var hengdur upp á snaga, öðrum til viðvörunar. Það er umhugsunarefni hversu skammt Bretar eru komn- ir út úr nýlenduhugsun sinni. Þjóð- ir hugsa fyrst og fremst um sjálfar sig. Bandaríkin létu Bear Stearns ekki fara á hausinn eins og Leh- mans. Hvers vegna? Jú, níutíu pró- sent skuldunauta Lehmans voru utan Bandaríkjanna, en skuldu- nautar Bear Stearns fyrir innan. Þá er þeim bjargað. Sama gerist í Evrópusambandsríkjum. Þar er hugsað um nærumhverfið. Evr- ópusambandið bjó okkur meingall- aða löggjöf og regluverk um bak- hjarl bankanna. Við höfum aldrei fengið að láta reyna á hver væri okkar raunverulegi réttur. Þetta kerfi er smíðað til að vera bak- hjarl banka sem kynnu að fara á hausinn, en hvað gerist þegar heilt efnahagskerfi fer á hliðina? Það má draga okkur fyrir ESA til að tala um hvernig eigi að selja brennivín, reka ríkisútvarp eða reka félags- legt kerfi, en þegar kemur að þjóð- arhag er ekkert slíkt til umræðu. Þá kalla menn bara á Alþjóðagjald- eyrissjóðinn og færa skrúfurnar upp eftir þumlinum á okkur. Hvernig ætlið þið í VG þá að bjarga þjóðarhag, öðruvísi en innan ESB? Það er enginn sem hjálpar Íslend- ingum við að koma sínu húsi í lag, nema þjóðin sjálf. Það voru Íslend- ingar sem komu okkur í þessi vand- ræði og við verðum að súpa seyðið af því. En við munum ekki láta lán- ardrottna þessara manna ríða þjóð- inni að fullu. Við látum ekki beita okkur ofríki, en mér hafa fundist ærnir tilburðir til þess meðal Evr- ópuþjóða, meira að segja meðal Norðurlanda, utan Færeyinga. ESB er ekki hjálparstofnun. Eins og hvað? Það er fullreynt með norsku krónuna og varla viltu taka upp Bandaríkjadollara. Hvað er fleira í boði? Ég vil íhuga þessa spurningu. Ég held að við þurfum að skilgreina vel hvað það var sem kom okkur inn í þessi vandræði og hvernig við kom- umst út úr þeim. Það er ekki lengra síðan en 2000 að það virtist allt á Íslandi nánast í himnalagi. Við vorum að vísu að feta okkur út á þessa einkavæðingarbraut og ýmis ill teikn á lofti, en við bjuggum við tiltölulega lága skuldastöðu, stöðug- an hagvöxt og lága verðbólgu. Það eru allar forsendur til að reka þetta þrjú hundruð þúsunda þjóðfélag þannig að gagnist okkur öllum. Við skulum líka forðast patentlausna- hugsun og að halda að gjaldmiðill- inn sem slíkur bjargi okkur. Írar eru með evru, en hún hefur ekki bjargað þeim. Og Lettar fá ekki að taka upp evru. Írar þurftu ekki að leita til AGS. Nei, þeir fóru kannski ekki eins langt og Íslendingar gerðu. En það er ekkert sem gerist í þessum gjaldmiðilsmálum í bráð, nema að við þurfum að koma okkur út úr þessum vandræðum. En ef við tengjum krónu við evru í aðildarviðræðum? Ég hef efasemdir um að sú lausn sé gerleg eins og málum er háttað fyrir okkur Íslendingum. Nú skul- um við draga andann, koma okkar húsi í lag og ná okkar skuldum niður. Við þurfum að ræða okkur niður á niðurstöðu, en þessi lausn er ekki á næsta leiti. En við getum nálgast hana, við þurfum ekki að bíða í mörg ár með gjaldeyrishöft … Mér finnst það ekki markmið númer eitt, tvö og þrjú að losna við gjaldeyrishöftin, alls ekki. Miklu mikilvægara er að ná vöxtum niður, ég tel það forgangsverkefni. Vextir í ESB eru að nálgast núll prósent … Já, og hvernig eru þeir í Japan? Vextir eru ekki bara spurning um stóran gjaldmiðil, þetta er spurning um ákvörðun manna. En að styrkja krónuna, ætlið þið að taka hana alveg af markaði? Í augnablikinu er það sjálfgert með gjaldeyrishöftunum. Auð- vitað er það langtímamarkmið að styrkja hana og hafa sem sterkasta. En í tímans rás hefur gengið sveifl- ast til og frá og þá hefur þjóðin öll fundið fyrir kjarasveiflunum. Þetta hefur verið styrkur okkar samfé- lags að við tökum skellina saman. Af hverju finnst vinstri mönnum gengislækkun jákvæð? Eru það ekki sjávarútvegsmenn sem hagn- ast á lágu gengi meðan heimilin fá verðbólgu? Spurningin er hvort öll heimili taka þetta á sig eða sum. Það eru nokkrar breytur í efnahagslífinu. Það er verðgildi gjaldmiðilsins og atvinnustigið, ekki satt? Hvort viltu heldur að þjóðin taki þetta öll í rýrnandi kaupmætti eða að lítill hluti hennar taki það í atvinnuleysi? Auðvitað vil ég hafa sem stöðug- ast gengi og öflugan gjaldmiðil og kröftugan kaupmátt. En nú erum við að lenda í þessum skakkaföll- um og þurfum að feta okkur út úr þeim og það getum við aðeins gert saman. Íslendingar kunna að leggj- ast á árarnar saman, en þá þurfum við að vera í sama bátnum. Það er hlutverk stjórnvalda að koma öllum í sama bátinn, þannig að það sé ekki einn á skektu og annar á lystisnekkju. Nú skulum við leggj- ast á árarnar og síðan að ræða hvar okkur er best borgið, á opinn og lýð- ræðislegan hátt. Á endanum verður það þjóðin sem ákveður þetta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.