Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 24
24 6. júní 2009 LAUGARDAGUR
Ö
gmundur Jónas-
son hefur starfað
sem fréttamaður
og kennari og verið
formaður BSRB
síðan 1988, þing-
maður síðan 1995. Eftir búsáhalda-
byltingu var hann skipaður heil-
brigðisráðherra, en hann var einn
helsti hvatamaður ríkisstjórnar
VG og Samfylkingar, ásamt félaga
sínum Össuri Skarphéðinssyni.
Ömmi frændi, eins og hann er
stundum kallaður, vísaði þá til bágs
efnahagsástands og afþakkaði ráð-
herralaun.
Verðurðu áfram á þingfararkaupi
uns ástandið lagast?
Á fyrstu dögum mínum í ráðu-
neytinu skrifaði ég þeim sem fara
með fjármál stjórnarráðsins og
sagðist ætla að vera á þingmanna-
taxtanum. Ég vissi að við stæðum
frammi fyrir mikilli kjaraskerð-
ingu innan heilbrigðiskerfisins,
sem er raunin. Kjör starfsfólks
hafa rýrnað og ég ber formlega
ábyrgð á þeirri framkvæmd. Ég
vildi ekki ganga til þessara verka
nema með því að vera í hópnum.
Þessi ákvörðun stendur þar til
annað verður ákveðið.
Nú heyrist að þjóðarsáttin sé fyrir
bí vegna hárra stýrivaxta. Seðla-
bankastjóri segist ekki geta lækkað
vexti því það skorti aðhaldsaðgerð-
ir frá stjórninni. Hvar og hvernig
munt þú skera niður?
Ég vil leyfa mér að hafna þessari
kenningu, ég held að hún sé alröng.
Hvernig stendur á því að hagkerfi
sem býr við gjaldeyrishöft, þar sem
peningarnir komast illa út úr land-
inu, þarf jafnframt að hafa heims-
ins hæstu vexti sem gulrót fyrir
fjármagnseigendur? Ég held að
Seðlabankanum og yfirbarnfóstr-
unni, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,
sé eitthvað að fatast dómgreindin
hvað þetta snertir. Nema það vaki
fyrst og fremst fyrir þeim að gæta
hagsmuna fjármagnseigenda? Því
miður læðist að manni sá grunur,
því hitt er víst að þessi stefna er
ekki í þágu íslensks samfélags,
hvorki skuldsettra heimila né
fyrir tækja. Háir stýrivextir virka
beint á dráttarvexti og á kjör þeirra
sem búa við erfiðustu skuldastöð-
una. Það er verið að þrengja ólina
um hálsinn á þessum aðilum. Mér
finnst þetta vera þjóðhagslega stór-
hættuleg stefna. Sönnunarbyrðin
hvílir núna á Seðlabankanum og
AGS, sem greinilega andar ísköldu
ofan í hálsmálið á bankanum, að
skýra fyrir þjóðinni hvernig á því
stendur að þessari stefnu er haldið
við. Nánast allar þjóðir í heiminum
eru að færa vexti niður undir gólf-
listann og ekki síst þær sem eiga í
erfiðleikum.
AGS og Seðlabankinn
Getur þú, samviskunnar vegna,
setið í ríkisstjórn sem framfylgir
þjóðhagslega stórhættulegri stefnu,
samkomulaginu við AGS?
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom
hingað inn við aðstæður sem ég
stjórnaði ekki og Íslendingar að
takmörkuðu leyti sjálfir. Þetta er
illur kostur sem er orðinn hluti
af okkar landslagi. Við þurfum
að vega og meta hvað við getum
gert við þessar aðstæður. Ég er
sannfærður um að sú ríkisstjórn
sem nú situr er sú besta sem völ
er á. Við stöndum frammi fyrir
þrotabúi sem Sjálfstæðisflokkur-
inn bjó til og skipulagði í tvo ára-
tugi, með hörmulegum afleiðing-
um. Þeir einkavæddu allt sem við
áttum sameiginlega. Þeir afhentu
það vildarvinum sínum sem nán-
ast eyðilögðu grunnstoðir samfé-
lagsins, svo sem fjármálakerfið.
Þeir grófu undan velferðarkerf-
inu og siðferðisvitund þjóðarinn-
ar. Aldrei fyrr í sögunni hafa jafn
fáir stjórnmálamenn skapað vinum
sínum jafn mörg tækifæri til að
rústa heilt samfélag á jafn stuttum
tíma og hér var gert. Þegar þess-
ir aðilar beina núna spjótum sínum
að ríkisstjórn sem er að reyna að
hreinsa til eftir þá, þá kemur það
vægast sagt úr hörðustu átt. Þeir
kasta grjóti úr gróðurhúsi. Fram-
sóknarflokkurinn er þó að reyna að
endurnýja sig og ég óska nýju fólki
þar alls hins besta. En ég undrast
forherðingu sjálfstæðismanna sem
leyfa sér að gagnrýna okkur við
hreinsunarstörfin. Núna óskapast
þeir yfir háum vöxtum! En hvert
hefur vaxtastigið verið hér á und-
an förnum árum?
Ég spurði áður hvar og hvernig
ætti að skera niður …
Þetta snýst í fyrsta stað um að
forgangsraða verkefnum. Ætlum
við að leggja ofurkapp á sam-
göngubætur, til dæmis? Ætlum við
að draga saman seglin í velferðar-
þjónustunni? Í annan stað gerir
margt smátt eitt stórt. Það er ekk-
ert kerfi svo gott að ekki sé hægt að
bæta það. Engin starfsemi þannig
skipulögð að ekki sé hægt að nýta
fjármunina á betri hátt. Við eigum
að vera opin fyrir nýjum hugmynd-
um og hugsa málin upp á nýtt. Sam-
dráttur þarf ekki að vera af hinu
illa, heldur getur verið hvati að
framförum. Síðan er á hitt að líta
að við ætlum að veita velferðar-
þjónustu áfram og hafa öflugt heil-
brigðis- og menntakerfi …
En það sem fólk vill heyra frá
heilbrigðisráðherra er: hvernig
mun þjónustan skerðast, geturðu
komið með dæmi um hvernig fólk
mun finna fyrir því?
Ég held að við séum að blekkja
okkur sjálf ef við höldum því fram
að samdráttur um marga milljarða,
í kerfi sem í sumum tilvikum hefur
verið tálgað inn að beini, bitni ekk-
ert á þjónustu. Það sem við erum að
reyna að gera er að draga úr skað-
semi samdráttarins. Yfirvinna
dregst saman, reksturinn straum-
línulagaður og öll þjónustan sett
undir stækkunargler, hvort sem er
rekstur eða lyf.
Ég heimsótti sjúkrahúsið í
Reykjanesbæ og þar er lítil endur-
hæfingarsundlaug. Það reif í hjart-
að í mér að sjá að það er búið að
slökkva á henni. Það kostar nokkrar
milljónir að reka hana á ári hverju.
En hið góða er að ég veit að það er
hægt að kveikja á henni aftur. Og
þannig þurfum við að hugsa þenn-
an samdrátt: að við veikjum ekki
kerfið til framtíðar heldur endur-
skipuleggjum okkur þannig að það
verði til grunnur til að geta sótt
fram af enn meiri krafti en áður
og það er verkefni heilbrigðisráð-
herra. Í Reykjanesbæ skáru stjórn-
endur og starfsmenn sjúkrahússins
niður um á annað hundrað milljón-
ir og þau þekkja miklu betur til en
ég. Og þetta er aðferðafræðin sem
við erum að nota alls staðar. Sam-
drátturinn á að vera framkvæmdur
á félagslega réttlátan hátt.
Hvað með aukna kostnaðarþátt-
töku sjúklinga?
Ég vil alls ekki fara lengra í þá
átt. Ég held að menn vilji almennt
greiða fyrir heilbrigðisþjónustuna
meðan þeir eru frískir, í vinnu og
aflögufærir. Hvers vegna að bíða
þangað til þú verður veikur og
fara að borga þá, þegar þú hefur
síst möguleika til þess?
Skattahækkanir og neysla
Frekar að hækka skatta?
Miklu frekar, tvímælalaust. Og
það er ekki bara mín skoðun. Þetta
er almennt viðhorf í þjóðfélaginu
eins og hefur margoft komið fram
í könnunum.
Er von á fleiri neyslusköttum?
Menn hafa svolítið rætt þessa
neysluskatta og talað um neyslu-
stýringu. Ég vil snúa dæminu við
og segja að það eigi ekki að neyslu-
stýra óhollustu ofan í þjóðina. Það
á að forða okkur frá áreiti ágengra
aðila sem eru að reyna að koma
ofan í okkur eins miklum sykri og
gosi og alls kyns óhollustu og þeir
mögulega geta. Gosdrykkir eru
fínir í hófi, ég drekk oft sykrað
gos og innbyrði sykur. En ef við
afnæmum allar niðurgreiðslur og
alla stýringu á markaði þá kostaði
mjólkurlítrinn margfalt meira en
núna en kókið væri á sínum stað,
því menn lækkuðu meira skatta á
því en nokkurri annarri vöru þegar
þeir lækkuðu virðisauka og vöru-
gjöld.
Hvaða skattar verða þetta?
Sykur, bensín, áfengi … og?
Ég er enginn áhugamaður um
að hlaða ofursköttum á þjóðina,
en þegar spurningin er um hvað
manni finnst réttlátt að skattleggja,
þá horfir maður á þessa þætti. Við
eigum að skoða það eins og aðrar
þjóðir að skattleggja neyslu sem
kemur samfélaginu í koll.
Vill byggja á Hringbraut
Háskólasjúkrahúsið, það kostar
víst 3,7 milljarða á ári að reka
Landspítala í 21 húsi. Ætlar þú að
sameina þau í eitt með þessari 51
milljarðs leið forstjóra spítalans?
Ef ég réði einn … Ég hef ekki
farið í grafgötur með það að þetta
er ofarlega á mínu blaði. Hins vegar
tökum við sameiginlega ákvörð-
un um þetta. Ég er sannfærður um
að þetta er skynsamleg ráðstöf-
un. Það er búið að finna ódýrari
og hagkvæmari lausn en áður var
uppi. Það er dýrt að gera ekki neitt
og þegar dæmið er gert upp þá er
hyggilegt að hefja þetta verk.
En það er enginn peningur til …
Nei, en við ætlum samt ekki að
setja allt samfélagið á stopp, þá
setjum við alla á atvinnuleysis-
tryggingarsjóð. Það er verðmæta-
skapandi og sparandi að endur-
nýja sjúkrahúsin. Þetta er hluti af
ferli sem hófst fyrir mörgum árum
með sameiningu spítalanna og við
erum ekki búin að ná samlegðar-
áhrifum af því enn þá. Ég segi að
við gerum þetta með þeim hraða
sem við ráðum við, eins og fjárhag-
ur leyfir. En það eru auðvitað uppi
sjónarmið um aðrar framkvæmdir
í öðrum ráðuneytum.
Er ekki meira vit í þessu en tón-
listarhúsi?
Það var ákveðið að halda áfram
með tónlistarhúsið, frekar en að
jafna það við jörðu. Það má deila
um það, en sú ákvörðun liggur
fyrir. Ef við förum inn í hönnunar-
vinnu núna með nýjan spítala, þá
má hugsa sér að framkvæmdir
hæfust þegar tónlistarhúsið væri
komið á veg. Það þarf að flétta
þetta saman.
Kreppustjórnin
Þú gagnrýndir Þingvallastjórnina
fyrir aðgerðarleysi og upplýsinga-
skort. Nú eruð þið gagnrýnd fyrir
hið sama. Fólk sér ekki að allt sé
uppi á borði …
Vandi okkar er margþættur.
Hann er að hluta til sá að ýmsir
telja að ríkisstjórnin sé þess megn-
ug að gera meira en hún getur.
Mér er sagt að Kaupþingsgjald-
þrotið sé þriðja stærsta bankahrun
í heiminum, frá heimskreppunni
1930. Íslendingar standa tíu sinn-
um verr en Kaliforníubúar, þegar
þeir stóðu frammi fyrir gjaldþroti.
Vandi Íslendinga er áþekkur vanda
Svía eftir bankakrísuna þar í krón-
um talið, nema að Svíar eru 25 sinn-
um fleiri en við og vandi okkar er
margfaldur miðað við vanda Finna
í kreppunni þeirra. Fólk er að ætl-
ast til þess að ríkisstjórn geti gert
meira en hún hugsanlega getur. Það
er búið að grípa til ýmissa ráðstaf-
ana sem skipta máli. Og við erum
ekkert búin. Við erum rétt að byrja
og við verðum stöðugt að vera með
til skoðunar leiðir og úrræði sem
standa til boða.
Varstu þá ekki ósanngjarn við
ríkisstjórn Geirs Haarde?
Ég held ekki. Í fyrsta lagi var það
Sjálfstæðisflokkurinn í samstarfi
við fylgissveina og -meyjar undan-
farna tvo áratugi, sem kom okkur
út í þessi vandræði. Með leyndinni
og tilskipunarvaldi, einkavina-
væðingu og svo framvegis. Þessir
Það voru Íslendingar sem komu okkur í þessi vandræði og
við verðum að súpa seyðið af því.
Alla Íslendinga í sama bátinn
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra segir Íslendinga á leiðinni úr tilskipunarþjóðfélagi veruleikafirrts Sjálfstæðisflokks.
Hann sagði Klemensi Ólafi Þrastarsyni að hann teldi það ekki vera forgangsatriði að afnema gjaldeyrishöftin, heldur lækka vexti.
ÖGMUNDUR Segir ráðherradóm ekki breyta því að hann hafi áhuga á að standa vörð um mannréttindi. Því hitti hann Dalai Lama.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R